Lífið

Blóðug rússíbanaferð: Fékk dúfu í hálsinn á fleygiferð í Ferrari

Stefán Árni Pálsson skrifar
Hverjar eru líkurnar?
Hverjar eru líkurnar?
Bílaáhugamenn geta heldur betur tekið gleði sína en á Spáni var að opna sérstakur skemmtigarður þar sem þemað er hraðskriðir bílar.

Garðurinn heitir einfaldlega The Ferrari Land Theme Park og var hann formlega opnaður 6. apríl.

Þann dag mættu 1500 manns til að prófa rússíbanana og öll tækin. Piero Ferrari, eini sonur Enzo Ferrari sem er enn á lífi, var meðal gesta en hann á tíu prósent hlut í Ferrari fyrirtækinu.

Á opnunardeginum átti sér stað heldur sérstakt atvik þegar einn farþeginn fékk dúfu beint í hálsinn og átti hún aldrei séns. Myndband af atvikinu má sjá hér að neðan.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×