Kvótagreifynja selur höll sósíalistaleiðtoga Jakob Bjarnar skrifar 10. apríl 2017 15:38 Ekkert er áhvílandi á eigninni og er leitað tilboða. Vonlaust er að segja til um hvað fæst fyrir 400 fermetra höll í hjarta Reykjavíkur.
Á söluskrá fasteignavefs Vísis er komin stórglæsileg eign sem staðsett er í hjarta Reykjavíkurborgar, við Þórsgötu 10, 101 Reykjavík. Sannkölluð höll en hús þetta er 400 fermetra alls. Hús þetta á sér skemmtilega sögu. Það var áður í eigu Gunnars Smára Egilssonar, fyrrverandi ritstjóra Fréttatímans og konu hans Öldu Lóu Leifsdóttur. Gunnar Smári hefur einkum vakið athygli fyrir það á undanförnum vikum og dögum að vinna hörðum höndum að stofnun Sósíalistaflokks Íslands og tala máli launaþræla og fátæks fólks þessa lands. Gunnar Smári seldi þetta veglega hús fyrir nokkrum árum áður en hann og fjölskylda hans fluttust til Frakklands hvar þau voru búsett um hríð. Seljandi nú er ekki þekkt fyrir það sérstaklega að tala máli verkalýðs en um er að ræða Helgu S. Guðmundsdóttur, fyrrverandi kona Þorsteins Más Baldvinssonar hjá Samherja. Hún er ein auðugasta kona landsins en árið 2009 var hún til dæmis skattadrottning Reykjaness. Húsið er sem áður sagði stórglæsilegt og er sagt að það hafi nýverið fengið veglega yfirhalningu. Athygli vekur að ekkert er áhvílandi á eigninni. Ekki er sett neitt verð á höllina, heldur óskað tilboða. Vísir bar það undir fasteignasala hversu mikið megi búast við að fáist fyrir eign sem þessa en hann ranghvolfdi í sér augunum og sagði að fasteignaverð í 101 væri orðið sturlað; það væri bara ekkert hægt að segja um það. Frekar en að segja ekki neitt slær hann fram 230 milljónum.En, annars má finna allar frekari upplýsingar og sjá myndir á fasteignavef Vísis.
Húsnæðismál Mest lesið Fann fíkniefnin strax Lífið Falleg tónlist GDRN hljómaði ekki nógu vel Gagnrýni Inga Lind selur íbúð við Valshlíð Lífið Fleiri sniðgengu en ekki Lífið Jón og Hafdís festu kaup á einbýli með bátaskýli Lífið Magnús Scheving og Hrefna glæsileg á opnun Sjálands Lífið Von á ákæru eftir spennuþrungna daga í Malmö Lífið Þátttaka Ísraela hafi skemmt mikið Lífið Fá í fyrsta sinn að klæðast strigaskóm Tíska og hönnun Biggi Maus breiðir yfir Frikka Dór Lífið Fleiri fréttir Biggi Maus breiðir yfir Frikka Dór Farnar á hestbak eins og hálfs og fjögurra ára Fleiri sniðgengu en ekki Von á ákæru eftir spennuþrungna daga í Malmö Inga Lind selur íbúð við Valshlíð „Þetta er náttúrulega sorgarsaga okkar Íslendinga“ Magnús Scheving og Hrefna glæsileg á opnun Sjálands Fann fíkniefnin strax Þátttaka Ísraela hafi skemmt mikið Ráðist á Steve Buscemi og hann fluttur á sjúkrahús Táraflóð í útgáfuteiti Bjarna Hlutu „Óskarinn“ í brúðkaupsskipulagningu Þessi skipuðu íslensku dómnefndina í Eurovision Herra Hnetusmjör hitti Akon: „Þeir vita sem vita“ Ari Bragi og Dóróthea eignuðust dreng Jón og Hafdís festu kaup á einbýli með bátaskýli Greindu frá kyninu á ströndinni Stjörnulífið: „Mér fannst mæðradagurinn alltaf triggerandi“ Þessi lönd gáfu Íslandi stigin þrjú „Það var algjört kossaflens í gangi í Breiðholtinu“ Leikkonan sem lék fyrsta fórnarlambið í Ókindinni er látin Fögnuðu heimkomu Nemo Kristrún ekki lengur á meðal ungs jafnaðarfólks Hellti sér yfir EBU að lokinni keppni Hundar mæta í vinnuna með eigendum sínum Skilyrði að koma Borgarnesi á kortið Nýir Íslendingar heimsóttu Bessastaði Mætti í eftirpartý og verður eftir í Malmö Guðný og Pétur selja glæsihöll í Garðabæ Fyndnustu gæludýramyndir ársins Sjá meira