Lífið

Íslensk ofurfyrirsæta leitar að leigjanda

Kristín Ólafsdóttir skrifar
Edda er ekki aðeins fyrirsæta heldur starfar hún einnig sem plötusnúður. Hér sést hún þeyta skífum í Brooklyn haustið 2015.
Edda er ekki aðeins fyrirsæta heldur starfar hún einnig sem plötusnúður. Hér sést hún þeyta skífum í Brooklyn haustið 2015. Vísir/Getty
Edda Pétursdóttir fyrirsæta, sem búsett er í New York, leitar nú að leigjanda.

Í stöðuuppfærslu á Facebook-síðu sinni segir Edda að hún sé mikið á ferðinni um þessar mundir. Því standi íbúð hennar í Williamsburg-hverfi í New York, sem reyndar er til sölu á tæpar 157 milljónir íslenskra króna, mjög oft auð.

Edda segist síður vilja selja íbúðina og auglýsir því eftir herbergisfélaga, sem hefði til umráða herbergi með einkabaðherbergi. Í myndbandi frá fasteignasölunni Town Residential, sem hefur íbúðina í sölu, kemur fram að með henni fylgi einkaverönd og hægt sé að fá aðgang að glæsilegri sundlaug.

Hér fyrir neðan má sjá Facebook-færslu Eddu ásamt myndbandi fasteignasölunnar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×