Lífið

Rappari hringdi í mömmu sína eftir að hafa verið tæklaður af dádýri

Birgir Olgeirsson skrifar
Kanadískur rappari var rétt búinn að stíga út úr bíl vinar síns þegar dádýr hljóp á hann. Þetta gerðist 1. apríl og áttu því vinir hans og vandamenn erfitt með að trúa þessari sögu hans.

„Það fyrsta sem ég gerði var að hringja í mömmu,“ sagði Cary McCook við Abbotsford News í Kanada.

„Ég sagði: „Mamma, ég var tæklaður af dádýri fyrir utan hótelið mitt!“ Og hún bara hló og sagðist aldrei hafa heyrt um slíkt áður.“

McCook útskýrði málið fyrir starfsmönnum hótelsins og bað þá um að líta á upptöku úr öryggismyndavélinni fyrir utan hótelið og þá reyndist þessi frásögn hans dagsönn.

Hann sagðist ekki hafa orðið fyrir alvarlegum meiðslum, en hafi þó verið brugðið.

„Þetta var óþægilegt og mikill skellur. Ég spila hokkí og þekki nokkra gaura sem kunna að tækla nokkuð harkalega, en ekki jafn harkalega og dádýr.“

Hann sagði dádýrið hafa verið að flýja undan hundi þegar hann varð fyrir því.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×