Lífið

Lygileg tilviljun: Fréttamaður greindi frá dauða eiginmannsins

Stefán Árni Pálsson skrifar
Hrikalegt að lenda í þessari stöðu.
Hrikalegt að lenda í þessari stöðu.
Indverski þulurinn Supreet Kaur lenti í því að þurfa greina frá bílslysi sem eiginmaður hennar hafði lent í og látið lífið.

Þetta átti sér stað í fréttatíma á indversku sjónvarpsstöðinni IBC 24. Maðurinn var í bifreið af tegundinni Renault Duster og létust þrír af þeim fimm farþegum sem voru inni í bílnum.

Þegar konan var að lesa fréttirnar áttaði hún sig á því að eiginmaður hennar hefði verið í Renault Duster á sama stað og á sama tíma.

„Þegar leið á fréttatímann gerði hún sér alltaf betur grein fyrir stöðu mála. Hún náði einhvern veginn að klára fréttina og baðst síðan undan að halda áfram,“ segir samstarfsmaður Kaur.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×