Fótbolti

Rooney ekki með á morgun

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Rooney spilaði síðast gegn West Brom 1. apríl.
Rooney spilaði síðast gegn West Brom 1. apríl. vísir/getty
Wayne Rooney, fyrirliði Manchester United, leikur ekki með liðinu gegn Anderlecht í 8-liða úrslitum Evrópudeildarinnar annað kvöld.

Rooney æfði með United-liðinu í morgun en fór ekki með til Belgíu. Hann hefur misst af síðustu tveimur leikjum United vegna ökklameiðsla.

Hinn 31 árs gamli Rooney hefur skorað tvö mörk í fimm leikjum í Evrópudeildinni í vetur.

Óvíst er hvort markahæsti leikmaður Anderlecht í vetur, Lukasz Teodorczyk, verði með annað kvöld en hann glímir við axlarmeiðsli.

Rene Weiler, knattspyrnustjóri Anderlecht, sagði að Teodorczyk myndi ekki byrja leikinn en yrði mögulega á bekknum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×