Fótbolti

Skoraði tvö gegn Barcelona og fékk svo nýja samning

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Dybala hefur skorað 39 mörk síðan hann kom til Juventus.
Dybala hefur skorað 39 mörk síðan hann kom til Juventus. vísir/getty
Paulo Dybala hefur framlengt samning sinn við Juventus til ársins 2022.

Það er óhætt að segja að vikan hafi verið eftirminnileg hjá Dybala. Á þriðjudaginn skoraði hann tvö mörk í 3-0 sigri Juventus á Barcelona í 8-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu og í dag skrifaði hann svo undir nýjan samning við ítalska stórliðið.

Argentínski framherjinn kom til Juventus frá Palermo sumarið 2015 og vann bæði deild og bikar á sínu fyrsta tímabili hjá Tórínó-liðinu.

Dybala, sem er 23 ára, hefur skorað 39 mörk og gefið 16 stoðsendingar í 82 leikjum fyrir Juventus.

Þrátt fyrir að hafa átt góðu gengi að fagna á Ítalíu undanfarin ár hefur Dybala aðeins leikið sex landsleiki fyrir Argentínu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×