Sport

Serena Williams er ólétt

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Serena hefur unnið 23 risamót á ferlinum.
Serena hefur unnið 23 risamót á ferlinum. vísir/getty
Tennisstjarnan Serena Williams birti í dag mynd af sér á Snapchat, standandi á hlið með fyrirsögninni 20 vikur.

Flestir eru á því að Serena sé þarna að gefa til kynna að hún sé ólétt að sínu fyrsta barni. Serena, sem er 35 ára, er trúlofuð Alexis Ohanian, öðrum stofnanda Reddit.

Serena keppti síðast á Opna ástralska meistaramótinu í janúar, þar sem hún stóð uppi sem sigurvegari. Það var 23. sigur hennar á risamóti á ferlinum.

Serena dró sig svo úr keppni á næstu tveimur mótum sem hún átti að taka þátt í.

Næsta risamót er Opna franska í lok maí en ljóst er að Serena verður ekki á meðal þátttakenda þar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×