Handbolti

Haukar og Grótta komin í úrslitakeppnina

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Ramune skoraði sex mörk fyrir Hauka.
Ramune skoraði sex mörk fyrir Hauka. vísir/eyþór
Næstsíðasta umferð Olís-deildar kvenna í handbolta fór fram í dag.

Haukar og Grótta tryggðu sér sæti í úrslitakeppninni með sigrum í sínum leikjum.

Haukar unnu öruggan sigur á ÍBV í Schenker-höllinni, 25-20, og gerðu þar með út um möguleika Eyjakvenna á komast í úrslitakeppnina.

Maria Ines Da Silva og Ramune Pekarskyte skoruðu sex mörk hvor fyrir Hauka sem leiddu allan leikinn. ÍBV var í miklum vandræðum í sókninni og skoraði aðeins tvö mörk á fyrstu 21 mínútu leiksins.

Staðan í hálfleik var 12-6, Haukum í vil og Hafnfirðingar náðu mest níu marka forskoti í seinni hálfleik. Lokatölur 25-20, Haukum í vil.

Grótta átti ekki í miklum vandræðum með að leggja botnlið Fylkis að velli, 27-19.

Þetta var sjötti sigur Seltirninga í síðustu sjö leikjum en Íslandsmeistararnir hafa heldur betur rétt úr kútnum eftir áramót.

Sunna María Einarsdóttir skoraði átta mörk fyrir Gróttu. Thea Imani Sturludóttir og Christine Rishaug gerðu fimm mörk hvor fyrir Fylki.

Fram rúllaði yfir Selfoss á heimavelli, 32-23. Fram er áfram á toppi deildarinnar og dugir jafntefli gegn Stjörnunni í lokaumferðinni til að verða deildarmeistari.

Ragnheiður Júlíusdóttir og Steinunn Björnsdóttir voru frábærar í liði Fram og skoruðu samtals 22 mörk. Ragnheiður skoraði 12 mörk og Steinunn tíu.

Þá vann Stjarnan sjö marka sigur á Val, 28-21, á heimavelli.

Stefanía Theodórsdóttir skoraði átta mörk fyrir Stjörnuna en Diana Satkauskaite var með sjö mörk í liði Vals.

Haukar 25-20 ÍBV

Mörk Hauka: Maria Ines Da Silva 6, Ramune Pekarskyte 6, Erla Eiríksdóttir 4, Guðrún Erla Bjarnadóttir 4, María Karlsdóttir 3, Elín Anna Baldursdóttir 1, Sigrún Jóhannsdóttir 1.

Mörk ÍBV: Sandra Dís Sigurðardóttir 4, Sandra Erlingsdóttir, Karólína Bæhrenz Lárudóttir 3, Telma Silva Amado 3, Ásta Björt Júlíusdóttir 3, Ester Óskarsdóttir 2, Greta Kavailuskaite 1.

Grótta 27-19 Fylkir

Mörk Gróttu: Sunna María Einarsdóttir 8, Lovísa Thompson 5, Anna Úrsúla Guðmundsdóttir 4, Þórey Anna Ásgeirsdóttir 4, Unnur Ómarsdóttir 2, Emma Havin Sardardóttir 2, Selma Þóra Jóhannsdóttir 1, Laufey Ásta Guðmundsdóttir 1.

Mörk Fylkis:

Thea Imani Sturludóttir 5, Christine Rishaug 5, Hildur Björnsdóttir 4, Hrafnhildur Irma Jónsdóttir 4, Ólöf Kristín Þorsteinsdóttir 1, Þuríður Guðjónsdóttir 1.

Fram 32-23 Selfoss

Fram: Ragnheiður Júlíusdóttir 12, Steinunn Björnsdóttir 10, Sigurbjörg Jóhannsdóttir 2, Elva Þóra Arnardóttir 2, Hildur Þorgeirsdóttir 2, Elísabet Gunnarsdóttir 1, Arna Þyrí Ólafsdóttir 1, Hafdís Shizuka Iura 1, Guðrún Þóra Hálfdánsdóttir 1.

Selfoss: Perla Ruth Albertsdóttir 4, Dijana Radojevic 4, Hulda Dís Þrastardóttir 3, Kristrún Steinþórsdóttir 3, Arna Kristín Einarsdóttir 2, Ída Bjarklind Magnúsdóttir 2, Adina Maria Ghidoarca 2, Carmen Palamariu 1, Ásta Margrét Jónsdóttir 1, Margrét Katrín Jónsdóttir 1.

Stjarnan 28-21 Valur

Mörk Stjörnunnar: Stefanía Theodórsdóttir 8, Brynhildur Kjartansdóttir 5, Hanna G. Stefánsdóttir 5, Aðalheiður Hreinsdóttir 2, Helena Rut Örvarsdóttir 2, Nataly Sæunn Valencia 2, Rakel Dögg Bragadóttir 2, Elena Birgisdóttir 1, Sólveig Lára Kjærnested 1.

Mörk Vals: Diana Satkauskaite 7, Kristín Guðmundsdóttir 6, Kristín Arndís Ólafsdóttir 2, Íris Ásta Pétursdóttir 2, Vigdís Birna Þorsteinsdóttir 2, Gerður Arinbjarnar 1, Birta Fönn Sveinsdóttir 1.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×