Íslenski boltinn

„Við drögum liðið ekki úr keppni,“ sagði Óli Jóh um Val sem dró svo liðið úr keppni

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Ólafur fer með strákana sína til Bandaríkjanna á mánudaginn.
Ólafur fer með strákana sína til Bandaríkjanna á mánudaginn. vísir/eyþór
Valsmenn verða ekki með í átta liða úrslitum Lengjubikars karla í fótbolta þrátt fyrir að vinna alla fimm leiki sína í riðli 3 og komast örugglega í útsláttarkeppnina.

Valur átti að mæta KR í Reykjavíkurslag í átta liða úrslitunum sunnudaginn 9. apríl en degi síðar fer Valsliðið í æfingaferð til Bandaríkjanna. Valur gæti því aldrei spilað undanúrslitaleik 13. apríl ef liðið kæmist áfram. Það hefur því dregið liðið úr keppni.

Hlíðarendapiltar völtuðu yfir sinn riðil og unnu alla fimm leikina með markatölunni 17-7. Þeir luku riðlakeppninni með glæsilegum 3-1 sigri á ÍA sem hafnaði í öðru sæti og tapaði bara fyrir Val.

Inkasso-deildarlið Þórs, sem hafnaði í þriðja sæti með sjö stig, tekur sæti Vals í átta liða úrslitunum og mætir KR í vesturbænum á sunnudaginn klukkan 16.00 en leikurinn verður í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport 3 HD.

Ákvörðun Valsmanna að draga liðið úr keppni er nokkuð áhugaverð í ljósi viðtals sem tekið var við þjálfarann Ólaf Jóhannesson á Fótbolti.net eftir 2-1 sigurleik Vals á Víkingi Ólafsvík 19. mars. Þar var Ólafur spurður hvað Valsmenn ætluðu að gera ef þeir kæmust áfram sem var ansi líklegt á þeim tíma.

„Einhver hluti af okkur verður erlendis, ég veit ekki hvernig við göngum frá þessu. Ég er ekkert farinn að pæla í því,“ sagði Ólafur og bætti ákveðinn við að Valur myndi ekki draga liðið úr keppni.

„Við drögum liðið ekki úr keppni, það kemur ekki til greina.“

Ólafur náði að verjast spurningum Magnús Más Einarssonar, ritstjóra Fótbolti.net, fimlega en endaði svo á því að segja að unnið yrði í því saman að finna leikdag.

Átti Ólafur þar væntanlega við væntanlega mótherja og Knattspyrnusambandið en nú er ljóst að besta lið undirbúningstímabilsins, Reykjavíkurmeistarar Vals sem er eina liðið sem vann alla leikina í riðlakeppni Lengjubikarsins, verður ekki með í átta liða úrslitum keppninnar.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×