Körfubolti

Martin stigahæstur í góðum sigurleik

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Martin í landsleik.
Martin í landsleik. vísir/bára
Martin Hermannsson var enn eina ferðina besti leikmaður vallarins í leik í frönsku B-deildinni í kvöld.

Martin skoraði 20 stig fyrir lið sitt, Charleville, er það lagði Bourg-En-Bresse, 79-69.

Það var jafnt á með liðunum í hálfleik en Charleville tók frumkvæðið í síðari hálfleik og sigldi heim flottum sigri.

Lið Martins er í fjórða sæti deildarinnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×