Lífið

Heimilislaus maður brotnaði niður eftir að hann fékk allsherjar yfirhalningu

Stefán Árni Pálsson skrifar
Svakalegt að sjá breytinguna.
Svakalegt að sjá breytinguna.
Jose Antonio er 55 ára heimilislaus maður sem býr á Spáni. Hann hefur búið á götunni í 25 ár og nær því sjaldan að þrífa sig, fara í klippingu og raka sig.

Antonio fékk boð á hárgreiðslustofu á dögunum og var tekinn í allsherjar yfirhalningu. Hann var með sítt grátt hár og mikið skegg. Það fékk allt saman að fjúka og fékk hann fallegan svartan lit í hár og skegg.

Einnig var hann klipptur stutt og skeggið rakað nokkuðs stutt einnig. Maðurinn fékk því næst nýja skó, skyrtu og buxur og gekk út eins og milljón dollarar.

Þegar hann fékk að sjá sig í speglinum brotnaði hann niður og táraðist. Hann hafði greinilega ekki séð andlitið á sér í mörg ár. Virkilega falleg viðbrögð sem sjá má hér að neðan. 

 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×