Enski boltinn

Klopp ældi næstum því er Bournemouth jafnaði

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Klopp var mjög svekktur í gær.
Klopp var mjög svekktur í gær. vísir/getty
Jürgen Klopp, stjóra Liverpool, varð óglatt er Bournemouth jafnaði gegn Liverpool í gær en leikur liðanna endaði 2-2.

„Venjulega klárum við svona leiki en gerðum það ekki núna og buðum upp á þetta. Það er svo þessi annar bolti eftir fast leikatriði sem varð þess valdandi að mér varð óglatt,“ sagði Klopp hrikalega svekktur.

„Þetta var ekki gott en við verðum að taka þessu. Það er á mína ábyrgð og ég verð að finna lausn á þessu vandamáli. Þegar sonur minn gerir einhverja vitleysu er það að stórum hluta mér að kenna. Ég hefði átt að útskýra stöðuna betur fyrir mínum mönnum.

„Ég sagði fyrr í vetur að allt sem færi miður væri á mína ábyrgð en allt það jákvæða væri leikmönnum að þakka. Það finnst mér sanngjarnt því ég hef aldurinn til þess að takast á við mótlætið.“


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×