Enski boltinn

Shaw ætlar að berjast fyrir sæti sínu

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Luke Shaw er ekki af baki dottinn.
Luke Shaw er ekki af baki dottinn. vísir/getty
Enski bakvörðurinn Luke Shaw hjá Man. Utd hefur fengið það óþvegið frá stjóranum sínum, Jose Mourinho, upp á síðkastið en ætlar ekki að láta það buga sig.

Mourinho hefur sagt að Shaw sé í raun bæði feitur og heilalaus. Sagði að hann væri í engu formi og að hann hefði þess utan fjarstýrt honum í síðasta leik.

„Ég mun berjast fram á síðustu sekúndu því ég vil vera hjá þessu félagi,“ sagði Shaw um stöðu sína hjá félaginu.

„Ég er að reyna að bera höfuðið hátt. Ég elska þetta félag og vil hvergi annars staðar vera. Ég er að ganga í gegnum tímabil þar sem allt er á móti mér. Ég vil samt svo mikið að mér gangi vel hérna að ég ætla að afsanna allar hrakspár.

„Það hefur verið erfitt að fá alla þessa gagnrýni því þannig er ég ekki.“


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×