Íslenski boltinn

Gísli framlengir við Breiðablik

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Gísli og Arnar Grétarsson, þjálfari Breiðabliks, handsala samninginn.
Gísli og Arnar Grétarsson, þjálfari Breiðabliks, handsala samninginn. mynd/breiðablik
Miðjumaðurinn Gísli Eyjólfsson hefur skrifað undir nýjan þriggja ára samning við Breiðablik.

Gísli, sem er 22 ára, er uppalinn Bliki og hefur spilað talsvert í Pepsi-deildinni undanfarin tvö ár.

Gísli lék fimm leiki með Breiðabliki í Pepsi-deildinni 2015. Í fyrra lék hann þrjá deildarleiki með Víkingi Ó. áður en hann sneri aftur í Kópavoginn. Gísli skoraði tvö mörk í 15 leikjum fyrir Blika á síðasta tímabili.

Hann var einnig lánaður til Augnabliks og Hauka á sínum tíma.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×