Lífið

Pétur fékk fimm stig fyrir að fara í mjög sársaukafulla cupping-meðferð

Stefán Árni Pálsson skrifar
Fyrsti þátturinn af Asíska draumnum var á dagskrá Stöðvar 2 í gærkvöldi og fór þáttaröðin heldur betur vel af stað.

Þátturinn er ein stór keppni þar sem Steindi Jr. og Auðunn Blöndal keppa á móti Sveppa og Pétri Jóhanni í stigasöfnun og þurfa þeir að fara í gegnum allskonar þrautir til að ná í stig.

Eitt skemmtilegt atriði vakti sérstaka athygli í gærkvöldi en Pétur Jóhann Sigfússon skellti sér í cupping-meðferð eins og innfæddir gera gjarnan. Þá eru sérstökum glerkrukkum komið fyrir á baki skjólstæðingsins og er eldur inni í þeim. Húðin lyftist upp og vinnur sér leið upp krukkuna en þetta á að auka blóðflæðið og á að vera mjög hollt.

Pétur var sárþjáður allan tímann og Sveppi reyndi eftir bestu getu að gera lítið úr því sem var að gerast fyrir húðina á honum. Niðurstaðan varð síðan sú að Pétur stóð eftir með nokkrum hringlaga för á bakinu, för sem Sverrir Þór tók nánast ekki eftir.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×