Íslenski boltinn

Daninn Tobias mættur í Vesturbæinn

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Willum Þór, þjálfari KR, er kominn með fjóra Dani.
Willum Þór, þjálfari KR, er kominn með fjóra Dani. vísir/hanna
KR er búið að semja við danska framherjann Tobias Thomsen.

Hann kemur til KR frá danska liðinu AB. Hann er búinn að spila 128 leiki í Danmörku og skora í þeim 55 mörk. Hann hefur leikið með AB, Næstved, Nyköbing og Köge.

Þetta er strákur fæddur árið 1992 og er sagður vera duglegur, vinnusamur og sterkur framherji.

Thomsen er fjórði leikmaðurinn sem KR fær til sín fyrir tímabilið en hinir eru Robert Sandnes, Arnór Sveinn Aðalsteinsson og Garðar Jóhannsson.

Hann er enn fremur fjórði Daninn í herbúðum KR-inga en þar eru fyrir Morten Beck, Michael Præst og Kennie Chopart.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×