Lífið

Falleg íslensk heimili: Eitt af hundrað merkustu húsum 20. aldar í norður- og miðhluta Evrópu

Stefán Árni Pálsson skrifar
Virkilega smekklegt hús.
Virkilega smekklegt hús.
Nýr íslenskur þáttur hóf göngu sína á Stöð 2 á dögunum og heitir hann Falleg íslensk heimili.

Þar fá sérfræðingarnir Gulla Jónsdóttir, arkitekt og hönnuður, Helgi Ómarsson, ljósmyndari og stílisti og Þóra Margrét Baldvinsdóttir hönnunarráðgjafi það skemmtilega verkefni að skoða falleg íslensk heimili.

Markmiðið er að ná fram því sem fallegt er og gleður augað. Sitt sýnist hverjum en svo mikið er víst að það er alltaf fróðlegt að fá umfjöllun um mismunandi arkitektúr, hverfi og hugmyndir manna um híbýli. Síðast en ekki síst er einfaldlega gaman að sjá hvernig aðrir hafa hreiðrað um sig.

Þrjú heimili eru heimsótt í hverjum þætti og fá sérfræðingarnir aldrei að hitta þá sem búa í eigninni. Í öðrum þættinum var farið í heimsókn í eitt sögufrægasta hús landsins við Bakkaflöt og er það eftir arkitektinn Högnu Sigurðardóttir.

Hagna er án efa einn merkasti aríktekt sem ísland hefur alið. Húsið hefur verið varðveitt algjörlega frá því það var byggt og var ytra borð hússins og allar fastar innréttingar þess friðaðar árið 2012 að ósk eigenda hússins.

Frumleg túlkun Högnu á sérkennum íslenskrar byggingarlistar hefur orðið til þess að margir hafa tilnefnt þetta hús sem eitt merkasta framlag einstaklings til íslenskrar nútímabyggingarlistar.

Það álit var staðfest árið 2000, þegar húsið var valið eitt af 100 merkustu byggingum 20. aldar í norður- og miðhluta Evrópu, í tengslum við útgáfu yfirlitsrits um byggingarlist 20. aldar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×