Þórey Rósa frábær þegar lið hennar vann toppliðið Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 29. mars 2017 17:48 Þórey Rósa Stefánsdóttir. vísir/ernir
Íslenski landsliðshornamaðurinn Þórey Rósa Stefánsdóttir átti frábæran leik í kvöld þegar lið hennar Vipers Kristiansand vann tveggja marka sigur á útivelli á móti toppliði Larvik. Þetta var gott kvöld fyrir íslensku landsliðskonurnar því Birna Berg Haraldsdóttir og félagar í Glassverket svo gott sem tryggðu sér þriðja sætið með 30-24 heimasigri á Byåsen Elite. Þórey Rósa Stefánsdóttir skoraði sjö mörk úr aðeins átta skotum í 32-30 sigri Vipers á Larvik og var markahæst í sínu liði ásamt Mörtu Tomac sem skorað sjö mörk úr tíu skotum. Það var ljóst fyrir leikinn að Larvik-liðið er deildarmeistari og að Vipers Kristiansand fékk silfurverðlaunin. Larvik var fyrir leikinn búið að vinna alla átján deildarleiki sína á tímabilinu en þetta var tíundi deildarsigur Vipers-liðsins í röð. Fyrsta mark Þóreyjar Rósu í leiknum kom Vipers-liðinu í 5-0 en hún skoraði fimm af fyrstu sextán mörkum síns liðs. Vipers var með fimm marka forystu í hálfleik, 20-15. Þórey Rósa skoraði fyrsta mark Vipers-liðsins í seinni hálfleik og kom þá liðinu í 21-16 en sjöunda mark hennar kom liðnu í 29-25. Vipers hélt síðan út og fagnaði 32-30 sigri. Birna Berg Haraldsdóttir skoraði 3 mörk úr 12 skotum þegar Glassverket vann sex marka sigur á Byåsen Elite. Glassverket endaði sex leikja sigurgöngu Byåsen og náði tveggja stiga forystu á Byåsen í baráttunni um þriðja sæti deildarinnar en liðið voru jöfn að stigum fyrir leikinn.
Handbolti Mest lesið Kane skrifaði undir samning á lokahófi Grindavíkur Körfubolti Tveir Færeyingar til silfurliðsins Handbolti Uppgjör: FH - Fram 3-3 | Ótrúleg endurkoma Fram í Krikanum Íslenski boltinn „Veit ekki hvaðan þetta kom allt frá okkur“ Íslenski boltinn „Eftir að við fengum á okkur fyrsta markið slökktum við á okkur“ Íslenski boltinn Pressa Þjóðverja bar loks árangur Fótbolti Fyrstu sigrar Aftureldingar og Þróttar Íslenski boltinn Benedikt tekinn við Stólunum Körfubolti Njarðvíkingar rústuðu Þórsurum Íslenski boltinn Hnéskel Kristófers fór í tvennt Körfubolti Fleiri fréttir Tveir Færeyingar til silfurliðsins Íslandsmeistarinn Aron er hvergi nærri hættur Gummi Gumm velur Höllu Hrund í liðið sitt Magdeburg meistari eftir stórsigur í Mannheim Guðjón Valur kom Gummersbach í Evrópukeppni Óðinn og félagar náðu ekki að tryggja sér titilinn Mikkel eftir tapið á móti liði Gumma Gumm: Þurfum að horfa inn á við Guðmundur orðlaus „Mig langaði bara ógeðslega mikið að verða Íslandsmeistari“ „Hann er bara svindkall í þessari deild“ „Ég held að ég hafi sjaldan verið jafn glaður“ Uppgjör: Afturelding - FH 27-31 | FH-ingar Íslandsmeistarar Twitter um langþráðan FH-titil: „Það sem ég elska þetta“ Erfitt kvöld hjá okkar mönnum Strákarnir hans Guðmundar knúðu fram oddaleik Sigvaldi og Bjarki Már meistarar Strákarnir okkar með Slóveníu, Kúbu og Grænhöfðaeyjum í riðli á HM Afturelding getur knúið fram oddaleik í kvöld „Stórkostlegt fyrir íslenskt íþróttalíf“ Tryggvi Þórisson sænskur meistari með Sävehof Tinna Sigurrós í Stjörnuna Tjörvi til Bergischer Ekki tilbúinn að ræða hversu margir kveðja Val Utan vallar: Þegar góðu gæjarnir koma fyrstir í mark Ómar Ingi með fjörutíu mörk í síðustu þremur leikjum „Gerist ekki grátlegra“ „Finnst þetta geðveikur sigur“ „Geggjað að sjá Símon setja hann í lokin“ Hetjan Símon: „Helvítis léttir“ Uppgjörið: FH-Afturelding 27-26 | FH-ingar tóku forystuna með síðasta skoti leiksins Sjá meira