Marsspá Siggu Kling – Krabbinn: Eins og eldspúandi halastjarna 3. mars 2017 09:00
Elsku hjartans krabbinn minn, það er hægt að segja með sanni að þetta er þinn tími. Þín orka hentar nákvæmlega inn í tímabil vorsins. Og þó að þér finnist vera læti í kringum þig þá er eins og þú látir þér fátt um finnast og heldur áfram að þínu takmarki eins og eldspúandi halastjarna sem enginn getur stöðvað. Engar fortölur, neikvæðni eða slúður geta náð þér, því að þú ert orðinn svo miklu sterkari en þú hefur nokkurn tímann verið. Þú lokar og gengur frá persónulegum ágreiningi og þér líður svo vel með það að það er eins og þú hafir drukkið úr hamingjulindinni. Ég veit að þetta virkar hrikalega væmið, en stjörnurnar í kortinu þínu sýna svo greinilega að þetta tímabil er þitt maraþon og þú ert fremstur meðal jafningja. Aðstæður í kringum þig sem tengjast veraldlegum hlutum eiga svo sannarlega eftir að pirra þig, en hversu mikilvægir eru þessir veraldlegu hlutir, þeir eru einskis nýtir því hamingjan býr svo sannarlega ekki í þeim. Það verður eldmóður í talanda þínum svo að þú þarft ekki að setja hugsanir þínar í excel, orðin munu koma frá þér án þess að þú þurfir að hugsa þau fyrir fram og skipuleggja, það er eins og þú fáir þennan X-factor til þess að verða stórmenni. Þetta er líka sent til ykkar ef þið hafið haft hindranir í líkama ykkar, veikindi í líkama eða huga, því góðar fréttir og mikill kraftur munu hjálpa þér til að setja heilbrigða stefnu í allt sem tengist sál þinni. Þetta er besta spá sem ég hef nokkurn tíma sent ykkur elsku krabbalabbarnir mínir. Svona raðast þetta upp hjá þér, svo vert þú þakklátur fyrir gjafirnar sem alheimurinn gefur þér. Í ástinni skaltu setja ástarorkuna til þín, þá muntu hitta manneskju sem léttir þér lífið og hlutirnir verða auðveldari með. En ef þú ert búin að vera í löngu sambandi þá eru skilaboðin að gera allt sem þú getur til að halda því áfram, því hjá þér bendir til að það komi nýtt upphaf að svo mörgu, en enginn endir er í sjónmáli. Mottó: Í upphafi skal ekki endirinn skoða, því að núið gefur þér allt sem þú þarft.Frægir Krabbar: Bryndís Schram, Sigga Lorange Ostabúðarskvísa, Auddi Blö, sem við elskum öll, Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri og dúlla, Ólafur Stefánsson, handboltakappi og heimspekingur, Edda Sif, Sindri Sindrason, Ásdís Halla Bragadóttir, Hjörvar Hafliðason og Lars Lagerbäck landsliðsþjálfari, Davíð hinn góði skóari í Hafnafirði, Stefán Árni Pálsson fréttamaður, Th. forseti Íslands, Bento veitingakóngur, Friðbjörn Europartakóngur, Yesmine Olsen, höfundur og framleiðandi, George Michael, Kristófer Helgason, dagskrágerðamaður.
Stjörnuspá Siggu Kling Mest lesið Fann fíkniefnin strax Lífið Falleg tónlist GDRN hljómaði ekki nógu vel Gagnrýni Jón og Hafdís festu kaup á einbýli með bátaskýli Lífið Þátttaka Ísraela hafi skemmt mikið Lífið Statham og Baltasar sameina krafta sína í væntanlegri hasarmynd Bíó og sjónvarp Þessi lönd gáfu Íslandi stigin þrjú Lífið Magnús Scheving og Hrefna glæsileg á opnun Sjálands Lífið Þessi skipuðu íslensku dómnefndina í Eurovision Lífið Neyslusaga móður: „Það var rítalínið sem rústaði mér alveg“ Áskorun Ráðist á Steve Buscemi og hann fluttur á sjúkrahús Lífið Fleiri fréttir Magnús Scheving og Hrefna glæsileg á opnun Sjálands Fann fíkniefnin strax Þátttaka Ísraela hafi skemmt mikið Ráðist á Steve Buscemi og hann fluttur á sjúkrahús Táraflóð í útgáfuteiti Bjarna Hlutu „Óskarinn“ í brúðkaupsskipulagningu Þessi skipuðu íslensku dómnefndina í Eurovision Herra Hnetusmjör hitti Akon: „Þeir vita sem vita“ Ari Bragi og Dóróthea eignuðust dreng Jón og Hafdís festu kaup á einbýli með bátaskýli Greindu frá kyninu á ströndinni Stjörnulífið: „Mér fannst mæðradagurinn alltaf triggerandi“ Þessi lönd gáfu Íslandi stigin þrjú „Það var algjört kossaflens í gangi í Breiðholtinu“ Leikkonan sem lék fyrsta fórnarlambið í Ókindinni er látin Fögnuðu heimkomu Nemo Kristrún ekki lengur á meðal ungs jafnaðarfólks Hellti sér yfir EBU að lokinni keppni Hundar mæta í vinnuna með eigendum sínum Skilyrði að koma Borgarnesi á kortið Nýir Íslendingar heimsóttu Bessastaði Mætti í eftirpartý og verður eftir í Malmö Guðný og Pétur selja glæsihöll í Garðabæ Fyndnustu gæludýramyndir ársins Bíó og plokkfiskur á Patreksfirði um hvítasunnuhelgina Meistari B-kvikmyndanna látinn Krakkatían: Prinsar, fótbolti og Hollywood pör „Veistu það Frosti, ég get ekki tekið þetta viðtal“ Ísland lenti í síðasta sæti í Eurovision Íslendingar gáfu Króatíu 12 stig og Ísrael 8 stig Sjá meira