Innlent

Allar fangageymslur fullar í nótt

Stefán Ó. Jónsson skrifar
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hafði í nógu að snúast í nótt ef marka má dagbók lögreglu.

Á sjötta tímanum í morgun var búið að færa inn 79 bókanir í dagbókina frá miðnætti og tekur lögreglan fram að allir fangaklefar á Hverfisgötu hafi verið fullnýttir.

Var því brugðið á það ráð að opna fangageymslurnar í Hafnarfirði svo koma mætti öllum brotamönnunum fyrir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×