Fótbolti

Strákarnir töpuðu fyrir Mexíkó | Sjáðu markið

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Markaskorarinn Pulido í baráttu við Orra Sigurð Ómarsson.
Markaskorarinn Pulido í baráttu við Orra Sigurð Ómarsson. Vísir/AP
Alan Pulido skoraði eina mark vináttulandsleiks Mexíkó og Íslands sem fór fram í Las Vegas í nótt.

Markið skoraði hann á 21. mínútu leiksins en sigurinn var verðskuldaður. Mexíkó var með boltann í meira en 70 prósent tímans.

Hirving Lozano fékk gott færi til að auka forystuna þegar tíu mínútur voru eftir af leiknum en skalli hans af skömmu færi rataði fram hjá. Þá skaut Luis Montes yfir þegar tvær mínútur voru eftir.



Ungir leikmenn fengu sín fyrstu tækifæri með báðum liðum í nótt en þekktustu leikmenn Mexíkó voru þeir Rafael Marquez og Giovani Dos Santos, fyrrum leikmenn Barcelona. Dos Santos spilar í dag með MLS-liðinu LA Galaxy.

Heimir Hallgrímsson leyfði alls sautján leikmönnum að spila í nótt en Tryggvi Hrafn Haraldsson spilaði sinn fyrsta landsleik þegar hann kom inn á sem varamaður fyrir annan nýliða, Kristin Frey Sigurðsson.

Markvörðurinn Frederik Schram, Kristján Flóki Finnbogason, Adam Örn Arnarson og Árni Vilhjálmsson fengu einnig sínar fyrstu mínútur með íslenska A-landsliðinu í nótt.

Lið Íslands spilaði 4-4-2 og var þannig skipað:

Markvörður: Frederik Schram

Vörn: Böðvar Böðvarsson (77. Kristinn Jónsson), Hallgrímur Jónasson, Orri Sigurður Ómarsson og Viðar Ari Jónsson (86. Adam Örn Arnarson)

Miðja: Aron Sigurðarson (78. Kristinn Steindórsson), Davíð Þór Viðarsson (F), Kristinn Freyr Sigurðsson (66. Tryggvi Hrafn Haraldsson) og Sigurður Egill Lárusson

Sókn: Aron Elís Þrándarson (78. Árni Vilhjálmsson) og Kristján Flóki Finnbogason (55. Oliver Sigurjónsson).

Davíð Þór Viðarsson í baráttunni ásamt Frederik Schram.Vísir/AP
Kristinn Freyr Sigurðsson.Vísir/AP



Fleiri fréttir

Sjá meira


×