Íslenski boltinn

Vilja óbreytt samstarf Þórs og KA

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Anna Rakel Pétursdóttir í leik með Þór/KA síðastliðið sumar. Þór/KA hafnaði í fjórða sæti deildarinnar.
Anna Rakel Pétursdóttir í leik með Þór/KA síðastliðið sumar. Þór/KA hafnaði í fjórða sæti deildarinnar. vísir/Anton
Þrátt fyrir yfirlýsingu aðalstjórnar KA um að félagið muni ekki endurnýja samstarfssamning við Þór um sameiginlegan rekstur kvennaliða í handbolta og fótbolta á Akureyri eru forráðamenn Þórs vongóðir um hið gagnstæða.

Samstarfið hófst árið 2001 og hefur skilað góðum árangri, þá sérstaklega knattspyrnumegin. Þór/KA varð Íslandsmeistari árið 2012 og hefur undanfarin tímabil haldið sér í efri hluta efstu deildar kvenna.

Eiríkur S. Jóhannesson, formaður knattspyrnudeildar KA, sagði við Vísi í fyrradag að félagið vildi koma á fót eigin knattspyrnuliðum í meistaraflokki og 2. flokki kvenna, meðal annars til að koma til móts við fjölgun iðkenda í yngri flokkum. Það hafi verið ósk iðkenda og foreldra þeirra.

Eiríkur viðurkennir að fyrst um sinn myndu tvö lið, sitt í hvoru lagi, ekki vera jafn sterkt og sameinað lið Þórs/KA. „En KA er orðið það stórt félag að við teljum að við getum sinnt þessu mjög vel,“ sagði hann.

Best fyrir leikmenn

Kvennaráð Þórs/KA fundaði með bæði knattspyrnudeild og aðalstjórn Þórs í fyrrakvöld og var það einróma ákvörðun aðila að Þór/KA myndi spila í Pepsi-deild kvenna. Starfið myndi halda áfram, um sinn, í óbreyttri mynd.

„Við viljum halda áfram að gera góða hluti og vonandi sem lengst. Svo meta menn hvað er best að gera,“ sagði Aðalsteinn Ingi Pálsson, formaður knattspyrnudeildar Þórs. „Ég held að það sé hagur kvennaknattspyrnu á Akureyri að samstarfið haldi áfram. Gleymum ekki að hafa í huga hvað sé besti kosturinn fyrir leikmennina.“

Árni og Aðalsteinn eru sammála um að það sé einlægur vilji kvennaráðsins og Þórs að samstarfið haldi áfram. Þeir vilja þó ekki tjá sig að neinu leyti um afstöðu KA.

„Ég veit ekki hvað er að baki yfirlýsingunni hjá KA,“ sagði Aðalsteinn. „Ég hef átt góða fundi með knattspyrnudeild KA í vetur og trúi því að menn vinni áfram að því að búa til gott starf.“

Leitað í myrkri

Nói Björnsson er í forsvari fyrir kvennaráð Þórs/KA og hefur verið í fjöldamörg ár. Hann segir að nú þegar ákveðið hafi verið að halda ótrauð áfram sé gott að leyfa rykinu að setjast á ný.

„Það er ekki nokkur áhugi hjá kvennaráðinu að breyta einu né neinu. Það ríkir mikil sátt um okkar starf og maður heyrir að fólk er slegið vegna þessa,“ sagði hann. „Við hefðum viljað setjast niður og fara betur yfir málin. Kannski er hægt að finna sameiginlegan flöt sem við sjáum ekki í því myrkri sem ríkir núna.“

Nói viðurkennir að farvegur málsins nú sé ekki nógu góður. „Við erum bjartsýn og höfum kallað eftir fundum. Við viljum að fólk setjist niður og skiptist á skoðunum,“ segir hann.

Eiríkur sagði við Vísi í fyrradag að umræðan í bæjarfélaginu, til dæmis á samfélagsmiðlum, væri oft hatrömm og að samskiptin á milli félaganna hafi ekki alltaf verið góð.

„Fylgstu bara með umræðum á samfélagsmiðlum. Ég ætla ekki að segja meira um það. Þetta er bara heitt mál og það er keppnisskap í öllum. Menn segja margt,“ sagði Eiríkur


Tengdar fréttir

Formaður Þórs: Við erum ráðvillt

Segir að enginn sérstakur ágreiningur hafi verið á milli Þórs og KA. Hann hefði kosið að fara aðra leið en að slíta samstarfinu einhliða.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×