Lífið

Steindi kominn með mjög sérstaka hárgreiðslu eftir fyrsta tökudag

Stefán Árni Pálsson skrifar
Steindi Jr. er í liði með Audda Blö.
Steindi Jr. er í liði með Audda Blö. Vísir/Stefán
Tökur á nýrri seríu sem mun bera nafnið Asíski draumurinn hófust á mánudaginn. Þar munu koma fram Auðunn Blöndal, Steinþór Hróar Steinþórsson, Sverrir Þór Sverrisson og Pétur Jóhann Sigfússon líkt og í síðustu þáttaröð.

Asíski draumurinn verður framhald af Evrópska draumnum sem og Ameríska draumnum en þeir þættir voru sýndir á Stöð 2 á árunum 2010 og 2012.

Það er greinilega mikið fjör hjá strákunum en eftir fyrsta tökudag er Steindi Jr. kominn með blátt hár eins og sjá má á myndinni hér að neðan.

Svona lít ég út eftir fyrsta tökudag, guð hjálpi mér! #Asískidraumurinn

A photo posted by Steindi jR (@steindijr) on






Fleiri fréttir

Sjá meira


×