Íslenski boltinn

Íslenska landsliðið keppir við Leicester um Laureus verðlaunin

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Íslensku strákarnir stóðu sig frábærlega á EM í Frakklandi síðasta sumar.
Íslensku strákarnir stóðu sig frábærlega á EM í Frakklandi síðasta sumar. Vísir/Getty
Íslenska karlalandsliðið í fótbolta hefur verið tilnefnt til hinna virtu Laureus verðlauna en þau eru með virtustu viðurkenningum í íþróttaheiminum.

Íslenska landsliðið er tilnefnt í flokknum „Framfarir ársins“ fyrir afrek sitt á EM í Frakklandi síðasta sumar. Þetta kemur fram í frétt á heimasíðu KSÍ.  

Ísland keppir meðal annars við Englandsmeistara Leicester City, heimsmeistarann í formúlu eitt og Ólympíumeistara frá Suður-Afríku.

Laureus verðlaunin hafa verið afhent árlega frá árinu 2000 og hafa margar stjörnur úr hinum ýmsu íþróttagreinum verið tilnefndar í gegnum árin.Ítarlegri upplýsingar um Laureus verðlaunin er að finna á heimasíðu samtakanna www.laureus.com og þar er einnig að finna upplýsingar um tilnefningar í öðrum flokkum og yfirlit yfir verðlaunahafa allt frá árinu 2000.

Laureus var ekki eingöngu stofnað til að veita íþróttafólki viðurkenningar. Eitt aðalmarkmið Laureus samtakanna er að standa fyrir góðgerðarverkefnum þar sem stutt er við íþróttaiðkun barna út um allan heim.

Tvö önnur lið og fjórir einstaklingar eru tilnefnd í sama flokki og karlalandsliðið okkar.

    Almaz AYANA (Eþíópía)

    Fiji Men's Rugby Seven liðið

    Íslenska karlalandsliðið í fótbolta

    Leicester City (England, fótbolti)

    Nico Rosberg (Þýskaland, formúla eitt)

    Wayde van Niekerk (Suður Afríka, frjálsar íþróttir)

Verðlaunin verða veitt í Mónakó 14. apríl næstkomandi og hefur fulltrúum landsliðsins verið boðið að vera viðstaddir verðlaunaafhendinguna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×