Körfubolti

Lovísa með sex þrista og tilþrif vikunnar í sigri

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Lovísa Henningsdóttir.
Lovísa Henningsdóttir. Mynd/@MaristAthletics
Lovísa Henningsdóttir fór á kostum með Marist-skólanum í bandaríska háskólaboltanum um helgina en hún var þá stigahæst á vellinum í sigri á Dartmouth.

Lovísa, sem er úr Haukum, skoraði 21 stig í leiknum auk þess að taka 4 fráköst, stela einum bolta og verja eitt skot.

Lovísa skoraði sex þriggja stiga körfur í leiknum en allir hinir leikmenn Marist-liðsins skoruðu bara tvo þrista samanlagt. Lovísa skoraði líka fleiri þrista en allir leikmenn Dartmouth í þessum leik.

Lovísa hefur aldrei skorað meira í einum leik í bandaríska háskólaboltanum en hún er á sínu öðru ári í skólanum.

Lovísa átti einnig tilþrif vikunnar í skólanum en hún skorað flautuþrist í leiknum þegar hún kom Marist í 44-41 um leið og þriðji leikhlutinn rann út.

Kári Jónsson, sem kemur líka úr Haukum, skoraði 11 stig á 19 mínútum þegar Drexel vann öruggan 84-44 sigur á Kean. Kári hitti úr 3 af 7 þriggja stiga skotum sínum í leiknum.






















Fleiri fréttir

Sjá meira


×