Innlent

Afþakkar 600 þúsund króna launahækkun og gagnrýnir kjararáð

Garðar Örn Úlfarsson skrifar
Gunnar I. Birgisson segir Alþingi hljóta að breyta niðurstöðu kjararáðs.
Gunnar I. Birgisson segir Alþingi hljóta að breyta niðurstöðu kjararáðs.
„Þetta er ekki til eftirbreytni þannig að það var fljótafgreitt af minni hálfu,“ segir Gunnar I. Birgisson, sem afþakkað hefur mikla launahækkun sem bæjarstjóri í Fjallabyggð.

Samkvæmt ákvörðun kjararáðs um 44 prósenta hækkun á þingfararkaupi áttu mánaðarlaun Gunnars að hækka um 600 þúsund krónur þar sem bæjarstjóralaunin taka mið af þingfararkaupinu.

„Mér finnst þessi úrskurður vægast sagt sérkennilegur. Og það var bæði mín hugsun og niðurstaða að taka þetta ekki. Ég náttúrlega þekki ekki forsendurnar sem þetta fólk vinnur eftir en þetta er algerlega úr takti,“ segir Gunnar, sem tekur þó skýrt fram að hann hafi verið fylgjandi því að hækka laun alþingismanna.

„En þetta er kannski of mikið í lagt. Menn hljóta að breyta þessu eitthvað, ég trúi ekki öðru. Ég veit bara ekki hvaða heimildir þingið hefur til að gera það en mér finnst þetta út úr kortinu,“ segir bæjarstjórinn.

„Ég bara veit það ekki, ég hef nú ekkert verið að auglýsa þetta,“ svarar Gunnar aðspurður um viðbrögðin við ákvörðun hans. „Ég tilkynnti það bara launafulltrúanum að vera ekki að bæta þessu á mín laun.“

Laun annarra starfsmanna í Fjallabyggð og þóknanir bæjarfulltrúa eru ekki tengd þingfararkaupi.

Í bæjarstjórn Hafnarfjarðar í gær var frestað afgreiðslu tillögu minnihluta Samfylkingar og Vinstri grænna um að nýjasta ákvörðun kjararáðs hafi ekki áhrif á launakjör bæjarfulltrúa í Hafnarfirði. „Það eru kaldar kveðjur til almennra launþega sem ekki hafa fengið viðlíka hækkanir á sínum launakjörum,“ bókaði minnihlutinn vegna frestunar meirihlutans sem vill bíða eftir útspili frá Alþingi eins og mörg sveitarfélög. 

Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu




Fleiri fréttir

Sjá meira


×