Lífið

Þórunn Antonía fór á kostum á Airwaves með skemmtilegum myndböndum

Stefán Árni Pálsson skrifar
Þórunn Antonía fór mikinn á YouTube.
Þórunn Antonía fór mikinn á YouTube.
Söngkonan Þórunn Antonía fór á kostum á tónlistarhátíðinni Iceland Airwaves um helgina en hún framleiddi svokallaða video dagbók með Nordic Playlist vefsíðunni þar sem hún greindi frá því helsta sem vakti athygli á hátiðinni og skoðaði hún sérstaklega hvaða norrænu tónlistarmenn koma fram á Iceland Airwaves.

Vefsíðan, www.nordicplaylist.com, var sett á laggirnar í janúar 2014 til að vinna að útbreiðslu norrænnar tónlistar í stafrænu umhverfi. Verkefnið er stutt af Norrænu ráðherranefndinni og var eitt af formennskuverkefnum Íslendinga árið 2014.

Spilunarlistinn er þróaður af NOMEX sem er norrænn samstarfsvettvangur ÚTÓN og systurskrifstofanna fjögurra á Norðurlöndum. Vefsíðan hefur að leiðarljósi að skapa aðgang að því sem er helst að gerast svo auðvelt sé að finna upplýsingar á einum stað.

Hér að neðan má sjá öll myndböndin frá helgninni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×