Sport

Hringdi Brady undir dulnefni í útvarpsþátt?

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Hringdi hann inn eða ekki? Það er stóra spurningin.
Hringdi hann inn eða ekki? Það er stóra spurningin. vísir/getty
NFL-stjarnan Tom Brady var í vikunni grunaður um að hafa hringt inn í útvarpsþátt til þess að taka upp hanskann fyrir sjálfan sig

Strákarnir sem voru með þáttinn voru að ræða um Brady og liðsfélaga hans, Julian Edelman.

Þá hringdi inn maður sem kallaði sig Matt frá San Diego. Mörgum þótti hann sláandi líkur Brady. Sérstaklega í upphafi símtalsins og einnig er hann hló.

Matt tók upp hanskann fyrir Brady. Kallaði hann besta leikmann allra tíma og hrósaði honum fyrir að vera giftur Gisele Bundchen.

Um leið og Matt lagði á fylltist Twitter þáttarstjórnandanna með ábendingum um að þetta hefði verið Brady að hringja inn.

Skiptar skoðanir eru um hvort þetta hafi í alvöru verið Brady sem hefur þó nægan frítíma þar sem hann er í banni. Brady hefur ekki afneitað sögunum og hinn dularfulli Matt hefur heldur ekki hringt aftur inn.

Hlusta má á hringinguna hér að neðan og líka þegar þáttastjórnendur reyna að kryfja hvort þetta hefði verið Brady í alvörunni.

NFL



Fleiri fréttir

Sjá meira


×