Þöggun staðreynda Gunnlaugur Stefánsson skrifar 13. ágúst 2016 06:00 Nú hefur það gerst, að regnbogasilungur er farinn að veiðast í Stöðvará í Stöðvarfirði. Það er sleppifiskur úr fiskeldinu í Berufirði og er dæmigert fyrir ógnina sem af eldisiðjunni stafar. Forystumenn eldisdrauma eru þekktir að því að gera lítið úr þeirri vá, eins og greinilega kom fram í viðtölum við þá í Bændablaðinu fyrir stuttu, neita blákalt fyrirliggjandi staðreyndum og reyna af mætti að telja fólki trú um að allt sé í fínu lagi. Enda er þöggun samofin eldisiðjunni og opinbert eftirlit í skötulíki. Reynslan er t.d. sú, að sjaldnast tilkynna eldisiðjurnar að fyrra bragði um sleppingar fiska úr sínum kvíum, langtum fremur neita svo lengi sem stætt er og gera svo minna úr en við blasir. Það var Veiðifélag Breiðdæla sem upplýsti í ályktun sinni fyrr í sumar um umtalsverðar sleppingar af regnbogasilungi úr kvíum í Berufirði sem höfðu verið viðvarandi um langa tíð og var öllum kunnugt sem vita vildu. Þá var loks gripið til viðbragða. Uppákoman á Patreksfirði haustið 2013 er dæmigerð, þegar bera fór á laxi í sjó. Laxeldisiðjan tilkynnti þá um 200 laxa slysasleppingu, en neyddist svo til að hækka þá tölu í 500, þegar 400 laxar höfðu veiðst á stöng innst inni í Patreksfirði. Öllum rannsóknum vísindamanna og opinberum stofnunum í Noregi ber saman um, að í laxeldisiðjunni eru slysasleppingar óhjákvæmilegar og meðaltalið sé að a.m.k. einn lax sleppi fyrir hvert tonn í framleiðslu. Veiðimálastofnun hefur staðfest það. Í Noregi var tilkynnt um 244 þúsund stroklaxa árið 2015, en norska hafrannsóknastofnunin telur að fjöldinn sé fjórum til fimm sinnum meiri eða yfir milljón stroklaxar. Og laxarnir ganga upp í laxveiðiárnar og blandast villtum stofni. Það hefur reynslan áþreifanlega sannað í Noregi og líka á Íslandi í lönduðum eldislöxum úr ánum. Verið er að undirbúa risalaxeldi í austfirskum fjörðum upp á 75 þúsund tonn. Ef öll sú framleiðsla verður að veruleika, þá munu a.m.k. 75 þúsund laxar sleppa úr austfirskum kvíum á ári, sem er umtalsvert meira en öll heildarlaxveiði á stöng á Íslandi. Engin ný tækni eða aðferðafræði getur breytt því, að lax sleppi úr kvíum. Þá eru slysasleppingar langtum líklegri úr kvíum í íslenskum fjörðum fyrir opnu úthafi eins og t.d. í Berufirði og Stöðvarfirði, þar sem veður eru válynd og geta valdið hamförum í sjó og rústað kvíunum á augabragði. Laxeldisiðjan ber þá enga ábyrgð á því stórtjóni sem af hlýst gagnvart lífríkinu og eignaspjöllum fólks, og ekki skylt að kaupa neinar tryggingar gegn slíkri vá, enda mat tryggingarfélaga á áhættunni svo hátt að slíkar tryggingar eru fokdýrar. Það er hjákátlegt að reyna viðbrögð eldismanna, þegar þeir neita staðreyndum, t.d. um úrganginn og mengunina sem af laxeldinu stafar. Mengunarvarnaeftirlit Noregs (Statens Forurensningtilsyn 2009) líkir úrgangi frá 9.000 tonna laxeldi við skolpfrárennsli frá 150 þúsund manna borg. Auk þess er umtalsverðu magni lyfja beitt í eldinu gegn alls kyns sjúkdómum sem grassera í mergðinni í kvíunum. Eldið er eini matvælaframleiðandinn sem heimilt er að demba öllum úrgangi af framleiðslu sinni óhreinsuðum beint í sjóinn. Er slík grútarmengun í austfirskum fjörðum ásættanleg og líkleg til að styrkja ímynd fjórðungsins um náttúrufegurð og hreinan sjó? Slík hegðan gæti skaðað mikla hagsmuni eins og t.d. ferðaþjónustuna og sjávarútveginn sem státar af heilbrigðum gæðafiski á mörkuðum sínum. Svo halda eldismenn því fram, að ástand villtra laxastofna sé í góðu lagi í Noregi. Manni hrýs hugur við slíkum fullyrðingum í ljósi staðreynda um hrun í villta laxastofninum þar í landi sem allar ábyrgar rannsóknir og stofnanir staðfesta eins og t.d. NINA (Náttúrurannsóknarstofnun Noregs, febrúar 2016). Prófessor Trggve T. Poppe við norska dýralæknaháskólann lýsti þeirri skoðun sinni á Alta-ráðstefnunni í febrúar árið 2016, að innan 5 ára yrðu allar laxveiðar í norskum ám úr sögunni, ef ekki verða gerðar róttækar ráðstafanir nú þegar. Risalaxeldi í opnum kvíum í íslenskum sjó með norskum og kynbættum laxi er meira en áhættusækin útrás, fremur glapræði. Það liggur fyrir að lífríkið mun skaðast verulega og villtur laxastofn verða fyrir tjóni og líklega deyja út um síðir. Víða um heim er þess krafist að stjórnvöld bregðist við slíkri umhverfisvá með því að setja um eldið strangar kröfur og stórefla eftirlit. T.d. að eldið fari fram í lokuðum tjörnum á landi og allur úrgangur skilinn frá og fargað eða leitast við að nýta til farsældar. Einnig að banna að nota kynbættan fisk af erlendum uppruna í eldinu og einvörðungu leyfa með geldfiski sem útilokar erfðamengun við villta stofna. Um það var gert samkomulag á milli eldis- og stangaveiðimanna fyrir milligöngu Veiðimálastofnunar á sínum tíma, en við það hefur ekki verið staðið. Á Íslandi er flest leyfilegt í laxeldinu og útlenskir fjárfestar vilja ólmir nýta sér slíkar aðstæður, enda verulega að þeim þrengt í löndum þar sem ríkir sæmileg umhverfisvitund. Meira að segja opinberu leyfin eru ókeypis á Íslandi, sömuleiðis aðgangur að sjó og landi, en kosta umtalsverðar fjárhæðir t.d. í Noregi. Og leyfin verða dýrmæt og ekki líður á löngu þar til nýtt kvótabrask haslar sér völl, og leyfin ganga kaupum og sölum á markaði fyrir skjótfenginn gróða. Viljum við að Austurland, Vestfirðir og Eyjafjörður verði gróðrarstía fyrir slíkt brask með óhjákvæmilegum umhverfisskaða og eignaspjöllum fyrir marga um allt land? Það er spurning sem blasir við núna, en of seint að svara innan tíðar, því þá verður ekki aftur snúið. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Mest lesið Minn maður mun standa í lappirnar Helgi Pétursson Skoðun Þetta snýst um orkuna Hildur Sif Skoðun Sanngjarnt lífeyriskerfi: Neikvæða eða jákvæða hvata til að virkja fatlað fólk til atvinnuþátttöku ? Gunnar Alexander Ólafsson ,Sigurður Árnason Skoðun Afhverju viltu fá trúð á Bessastaði? Diljá Ámundadóttir Zoega Skoðun Rýnum í rót lestrarvandans. Hvað ert þú að gera til að styðja við barn í þínu nærumhverfi ? Rakel Linda Kristjánsdóttir Skoðun Hvalveiðar á Íslandi, löng saga spillingar og sérhagsmunatengsla Valgerður Árnadóttir Skoðun Halldór 26.05.2024 Halldór Lestarsamgöngur milli Reykjavíkur og Keflavíkurflugvallar Guðmundur Björnsson Skoðun Sjókvíafúskið mikla Rán Flygenring Skoðun Af hverju er Baldur mitt val Ásta Kristín Sigurjónsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Hví Halla Hrund? – Skyldulesning! Ole Anton Bieltvedt skrifar Skoðun Sanngjarnt lífeyriskerfi: Neikvæða eða jákvæða hvata til að virkja fatlað fólk til atvinnuþátttöku ? Gunnar Alexander Ólafsson ,Sigurður Árnason skrifar Skoðun Minn maður mun standa í lappirnar Helgi Pétursson skrifar Skoðun Þetta snýst um orkuna Hildur Sif skrifar Skoðun Dýrmætt veganesti í forsetaembættið Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Af hverju er Baldur mitt val Ásta Kristín Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Í djúpneti íslenskra stjórnmála Magnús Guðmundsson skrifar Skoðun Hvalveiðar á Íslandi, löng saga spillingar og sérhagsmunatengsla Valgerður Árnadóttir skrifar Skoðun Lestarsamgöngur milli Reykjavíkur og Keflavíkurflugvallar Guðmundur Björnsson skrifar Skoðun Er sjálfvirknivæðing að stela störfum og framtíðar möguleikum hjá drengjum sem geta ekki lesið sér til gagns? Davíð Bergmann skrifar Skoðun Jákvæðni á Bessastöðum Þorsteinn Magnússon skrifar Skoðun Ég styð Baldur sem næsta forseta! Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Þjóðarmorðið á Gasa í tölum og hlutverk Íslands Ingólfur Shahin skrifar Skoðun Rýnum í rót lestrarvandans. Hvað ert þú að gera til að styðja við barn í þínu nærumhverfi ? Rakel Linda Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Pólítísk aflúsun Ólafur Þór Ólafsson skrifar Skoðun Að vaxa inn í framtíðina Viðar Hreinsson skrifar Skoðun A Letter of Encouragement for Voters of Foreign Origin. Nichole Leigh Mosty skrifar Skoðun Sameiningaraflið Katrín Jakobsdóttir Kári Bjarnason skrifar Skoðun Snúningshurðin í ráðuneytinu Jón Kaldal skrifar Skoðun Til óákveðinna kjósenda Eygló Halldórsdóttir skrifar Skoðun Opið bréf til forsetaframbjóðenda Elín Erna Steinarsdóttir skrifar Skoðun Ómetanleg leiðsögn Magnús Ingi Óskarsson skrifar Skoðun Vegið að æru embættismanna Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Hverjum treystum við fyrir fjöreggjunum okkar? skrifar Skoðun Stöndum í lappirnar! Vilborg Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Gjöf sem gefur Halla Tómasdóttir skrifar Skoðun Vegna hvers kýs ég Katrínu Jón Kristjánsson skrifar Skoðun Hvar er sómakenndin? Blakleikur Ísraels og Íslands Hrönn Guðmundsdóttir,Ragnhildur Hólmgeirsdóttir skrifar Skoðun Alþingi slátrar jafnræðisreglunni Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Málfarslöggan verk sín vann Ari Páll Kristinsson skrifar Sjá meira
Sanngjarnt lífeyriskerfi: Neikvæða eða jákvæða hvata til að virkja fatlað fólk til atvinnuþátttöku ? Gunnar Alexander Ólafsson ,Sigurður Árnason Skoðun
Rýnum í rót lestrarvandans. Hvað ert þú að gera til að styðja við barn í þínu nærumhverfi ? Rakel Linda Kristjánsdóttir Skoðun
Skoðun Sanngjarnt lífeyriskerfi: Neikvæða eða jákvæða hvata til að virkja fatlað fólk til atvinnuþátttöku ? Gunnar Alexander Ólafsson ,Sigurður Árnason skrifar
Skoðun Hvalveiðar á Íslandi, löng saga spillingar og sérhagsmunatengsla Valgerður Árnadóttir skrifar
Skoðun Er sjálfvirknivæðing að stela störfum og framtíðar möguleikum hjá drengjum sem geta ekki lesið sér til gagns? Davíð Bergmann skrifar
Skoðun Rýnum í rót lestrarvandans. Hvað ert þú að gera til að styðja við barn í þínu nærumhverfi ? Rakel Linda Kristjánsdóttir skrifar
Skoðun Hvar er sómakenndin? Blakleikur Ísraels og Íslands Hrönn Guðmundsdóttir,Ragnhildur Hólmgeirsdóttir skrifar
Sanngjarnt lífeyriskerfi: Neikvæða eða jákvæða hvata til að virkja fatlað fólk til atvinnuþátttöku ? Gunnar Alexander Ólafsson ,Sigurður Árnason Skoðun
Rýnum í rót lestrarvandans. Hvað ert þú að gera til að styðja við barn í þínu nærumhverfi ? Rakel Linda Kristjánsdóttir Skoðun