Fótbolti

Müller: Mörkin skipta mig ekki máli

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Müller virðist bara geta skorað á HM. Ekki EM.
Müller virðist bara geta skorað á HM. Ekki EM. vísir/getty
Þýski framherjinn Thomas Müller hefur ekki verið á skotskónum á EM í Frakklandi en það truflar hann ekki á meðan þýska liðinu gengur vel.

Müller segist vera meira en til í að fara markalaus heim eftir mótið svo lengi sem Þýskaland vinni það. Þrátt fyrir aragrúa færa hefur Müller ekki enn skorað á EM.

„Ég er ekki drifinn áfram á mörkum. Það sem drífur mig áfram er hungur í árangur,“ sagði Müller á blaðamannafundi í Frakklandi í dag.

„Auðvitað væri ég til í að vera búinn að skora en í Suður-Afríku var ég markahæstur á HM, missti af undanúrslitunum í banni og við fórum heim. Ég skemmti mér miklu betur í Brasilíu. Mark myndi auðvitað hjálpa mér því þá þyrfti ég ekki stanslaust að svara þessum spurningum.“

Þýskaland spilar í undanúrslitum EM gegn Frakklandi á fimmtudag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×