Fótbolti

Engir stuðningsmenn á tveimur lykilleikjum karlalandsliðsins á útivelli

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Eiður Smári Guðjohnsen og Gylfi Þór Sigurðsson eftir síðustu heimsókn til Króatíu, í umspili fyrir HM 2014. Þá taldi sá fyrrnefndi sig hafa spilað sinn síðasta landsleik. Sú reyndist aldeilis ekki raunin.
Eiður Smári Guðjohnsen og Gylfi Þór Sigurðsson eftir síðustu heimsókn til Króatíu, í umspili fyrir HM 2014. Þá taldi sá fyrrnefndi sig hafa spilað sinn síðasta landsleik. Sú reyndist aldeilis ekki raunin. Mynd/Vilhelm
Færri Íslendingar komust að en vildu í tilfelli landsleikja íslenska karlalandsliðsins á Evrópumótinu í Frakklandi í sumar vegna skorts á miðum. Enginn mun geta orðið sér út um miða á fyrstu tvo leiki liðsins á útivelli í undankeppni HM í haust þegar leikið verður gegn Úkraínu og Króatíu. Ástæðan er sú að báðir leikirnir munu fara fram fyrir luktum dyrum.

Flautað verður til leiks í undankeppni HM í september en Ísland spilar í I-riðli. Óhætt er að segja að riðlarnir hafi verið meira spennandi en um afar sterkan riðil er að ræða. Í sex þjóða riðli má finna fjórar þjóðir sem spiluðu á Evrópumótinu í Frakklandi. Til viðbótar við Króatíu, Úkraínu og Ísland eru Tyrkir líka í riðlinum. Hinar tvær þjóðirnar eru Finnland og Kósóvó.

Fyrsti leikur Íslands er á útivelli gegn Úkraínu 5. september. Leikið verður fyrir luktum dyrum en um refsingu er að ræða vegna hegðunar stuðningsmanna landsliðs Úkraínu. Sömu sögu er að segja um Króatíu sem þurfa að spila tvo fyrstu heimaleikina fyrir luktum dyrum, vegna óláta stuðningsmanna. Sá síðari er gegn Íslandi 12. nóvember. Í millitíðinni spilar Ísland heimaleiki gegn Finnum 6. október og Tyrkjum 9. október.

„Það verður mikil breyting fyrir leikmennina að fara úr 80 þúsund manna velli yfir í tóman völl,“ sagði Klara Bjartmarz, framkvæmdastjóri KSÍ, í Akraborginni í dag.

Hægt er að hlusta á viðtalið við Klöru að neðan en þar ræðir hún einnig um miðasölumál.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×