Innlent

Davíð minntist móður sinnar með stuðningsmönnum

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Davíð ræddi við gesti og gangandi á kosningaskrifstofunni í gær.
Davíð ræddi við gesti og gangandi á kosningaskrifstofunni í gær. Vísir/Eyþór
Davíð Oddsson bauð til samkvæmis á kosningaskrifstofu sína við Grensásveg seinni partinn í gær. Dagurinn var tilfinningaþrunginn fyrir forsetaframbjóðandann vegna andláts móður hans, Ingibjargar Kristínar Lúðvíksdóttur.

Hún hafði glímt við alvarleg veikindi eins og kom fram í tilkynningu frá framboði Davíðs í síðustu viku þegar meðal annars þurfti að aflýsa fundum á Suðurlandi af þeim sökum.

Davíð minntist móður sinnar þegar hann ræddi við stuðningsmenn sína síðdegis í gær en boðað hafði verið til grillveislu á Grensásveginum. Að neðan má sjá myndir frá veislunni sem Eyþór Árnason, ljósmyndari Fréttablaðsins og Vísis, tók.

Ingibjörg fæddist í Reykjavík árið 1922 og lætur eftir sig þrjá syni, auk Davíðs þá Björn Snorrason og Loga Gunnarsson, barnabörn og barnabarnabörn.

Þrátt fyrir allt verður Davíð á sínum stað í kappræðum forsetaframbjóðenda á RÚV í kvöld.


 

Vísir/Eyþór
Vísir/Eyþór
Vísir/Eyþór
Vísir/Eyþór
Vísir/Eyþór
Vísir/Eyþór
Vísir/Eyþór
Vísir/Eyþór


Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×