Mjólka lokar og fer undir þak KS og MS Snærós Sindradóttir skrifar 30. maí 2016 07:00 Fetaostur Mjólku verður eftirleiðis framleiddur hjá MS í Búðardal. Að sögn Leifs Grímssonar framkvæmdastjóra mun Mjólka leigja þar aðstöðu og ráða sér starfsfólk til að sinna framleiðslunni. vísir/Pjetur
Öll vinnsla fyrirtækisins Mjólku flyst í mjólkursamlag Kaupfélags Skagfirðinga á Sauðárkróki og í afurðastöð MS í Búðardal innan tíðar. Framleiðslu Mjólku verður hætt í Hafnarfirði en starfsmenn við framleiðslu fengu uppsagnarbréf vegna þessa í apríl. Árið 2009 keypti Kaupfélag Skagfirðinga, Mjólku og þar með sósuframleiðsluna Vogabæ sem framleiðir E. Finnsson sósur og Vogaídýfur. Kaupfélag Skagfirðinga á tíu prósenta hlut í MS, stærsta mjólkursamlagi landsins á móti 90 prósenta hlut Auðhumlu sem er samvinnufélag bænda í mjólkurframleiðslu. Í úrskurði Samkeppniseftirlitsins árið 2009 kom fram að afar náið samstarf væri á milli MS og KS en Þórólfur Gíslason kaupfélagsstjóri væri varaformaður stjórnar MS og hefði tímabundið verið annar forstjóri MS. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins var hann settur sem slíkur til að „taka til í rekstrinum“. Þegar Kaupfélag Skagfirðinga keypti Mjólku árið 2009 sagði í úrskurði Samkeppniseftirlitsins að með samrunanum hefðu fyrirtækin KS og MS nærri 100 prósenta markaðshlutdeild á mjólkurmarkaði. Svo sagði: „Í ljósi þessa og með hliðsjón af stöðunni á markaðnum telur Samkeppniseftirlitið að samruninn raski samkeppni í skilningi 17. gr. samkeppnislaga og er samruninn andstæður markmiði samkeppnislaga.“ Undanþága í búvörulögum gerði það þó að verkum að Samkeppniseftirlitið gat ekki gripið inn í. Þó kom fram í úrskurðinum að líta beri á KS og MS sem einn og sama aðilann í viðskiptalegu tilliti.Leifur GrímssonSíðan þá hefur vörumerkið Mjólka verið til húsa í Hafnarfirði. Framleiðsla fetaosts Mjólku flyst innan tíðar í starfsstöð MS í Búðardal og aðrar vörur verða framleiddar í mjólkursamlagi KS á Sauðárkróki. Leifur Grímsson, framkvæmdastjóri Mjólku, segir að þrátt fyrir þetta sé Mjólka enn í samkeppni við MS. „Mjólka er í raun bara vörumerki núna. Þetta bara snýst um hagræðingu og þess háttar.“ Leifur segir að fyrirkomulagið sé ekki villandi fyrir neytendur og það sé ekki svo að verslun við Mjólku sé í raun verslun við MS. „Neytendur eru alls ekki að versla við þann sama, hvað meinarðu? Þó að KS eigi í MS þá erum við í samkeppni við þá, alveg klárt. Hins vegar varðandi fetaostinn þá er það rétt að við framleiðum hann í verksmiðju MS í Búðardal. Við leigjum okkur aðstöðu þar og ráðum bara fólk til að framleiða hann þar.“ Hann segir KS ráðast í breytingarnar til að nýta fjárfestingu sína betur. „Mjólka er og verður í samkeppni við MS, það er bara þannig.“ Starfsmenn á lager og í markaðsmálum Mjólku hafa í einhverjum tilfellum tækifæri til að starfa áfram hjá fyrirtækinu. Starfsmenn í framleiðslu fengu hins vegar uppsagnarbréf í apríl eins og áður segir. Björn Valur Ellertsson hefur starfað í framleiðslu hjá Mjólku og Vogabæ í fjórtán ár. „Það eru ekki allir ánægðir með þetta. Þeir voru að reyna að fá flest af þessu starfsfólki til að koma með norður og prófa. Þeir hjá KS voru búnir að bjóðast til þess að fólk fengi frítt húsnæði og laun í þrjá mánuði á meðan fólk væri að átta sig á því hvort það vildi vera þarna eða ekki, en ég held að það sé enginn að fara þarna norður með þeim,“ segir Björn. Hann segir að það hafi ekki staðið til hjá sér að skipta um vinnu þegar flutningurinn kom upp. „Það er kurr í starfsfólkinu.“ Undanþága búvörulaga í bága við samkeppni Í úrskurði Samkeppniseftirlitsins árið 2009 segir að líta beri á MS og KS sem einn og sama aðilann í viðskiptalegu tilliti. Seta kaupfélagsstjórans í stjórn MS, staða hans sem tímabundinn forstjóri MS og markaðsráðandi staða fyrirtækjanna brjóti allt gegn samkeppnislögum. Sökum ákvæða búvörulaga gildi þessi meginsjónarmið hins vegar ekki um afurðastöðvar í mjólkuriðnaði. 71. grein búvörulaga hljómar svo: „Þrátt fyrir ákvæði samkeppnislaga er afurðastöðvum í mjólkuriðnaði heimilt að sameinast, gera með sér samkomulag um verkaskiptingu milli mjólkursamlaga að því er varðar framleiðslu einstakra mjólkurvara og hafa með sér annars konar samstarf til þess að halda niðri kostnaði við framleiðslu, geymslu og dreifingu mjólkurafurða.“Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu 30. maí.
Mest lesið Segðu Já í vinnunni og það strax! Atvinnulíf Kaupa allt hlutafé í Nicetravel Viðskipti innlent Hugrún nýr markaðsstjóri Defend Iceland Viðskipti innlent Skera niður Xbox til þess að spreða í gervigreind Viðskipti erlent Fluttu eitt prósent færri farþega en í júní á síðasta ári Viðskipti innlent Sky ætlar að festa kaup á ITV Viðskipti erlent Fjölmiðla- og auglýsingabransinn: „Jú, jú, það er alveg að koma nýtt búmm!“ Atvinnulíf Neytendastofa tæklar bílastæðamálin Viðskipti innlent „Það er aukaatriði í þessu hvað ég var lengi þarna“ Neytendur Afkoma ríkisins neikvæð um 182 milljarða Viðskipti innlent Fleiri fréttir Hugrún nýr markaðsstjóri Defend Iceland Kaupa allt hlutafé í Nicetravel Fluttu eitt prósent færri farþega en í júní á síðasta ári Fá AA- í einkunn Afkoma ríkisins neikvæð um 182 milljarða Neytendastofa tæklar bílastæðamálin Kristjana nýr framkvæmdastjóri Saffran Loka Te og kaffi á Suðurlandsbraut Eitt app fyrir ferðamenn til að skemmta sér og forðast hættur Of snemmt að draga fram heykvíslar Alvarlegt að forstjóri Samkeppniseftirlitsins taki undir með ASÍ og FÍB Fríverslunarsamningur EFTA og Víetnam í höfn Hægt að ráðstafa séreign í október frá og með 1. janúar Samkeppniseftirlitið hugsi yfir verðbreytingum olíufélaganna Drangar kaupa Brauð & Co Gul viðvörun hjá öllum og fjörutíu prósent á rauðu Mango opnar í Kringlunni Landsbankinn annast skráningu Styrkáss Má gefa börnunum sínum peninga? Vinna að því að fella niður kolefnisgjöld á strandsiglingar „Lukkuhjól“ Byko talið villandi fyrir neytendur Nýr framkvæmdastjóri Kalon Áfengisgjaldið tvöfalt hærra en veiðigjaldið en varla rætt Bera sig eftir viðskiptasamböndum Bakkusar „Maður er reiður og sár“ Verðhækkanirnar vonbrigði Guðrún Gígja nýr yfirlögfræðingur hjá Fossum Þórunn og Svali til Íslandsbanka Verðbólga eykst lítillega Ingólfur kaupir Ísbúð Vesturbæjar Sjá meira