Matthías Orri aftur til ÍR-inga Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 13. maí 2016 19:02 Matthías Orri Sigurðarson og Guðni Carrico handsala samninginn í kvöld. Mynd/ÍR
Matthías Orri Sigurðarson skrifaði í kvöld undir tveggja ára samning við ÍR og mun því spila á ný í Domino´s deild karla í körfubolta næsta vetur. Matthías Orri var einn besti leikstjórnandi deildarinnar þegar hann spilað síðast í Domino´s deildinni veturinn 2014-15. Guðni Carrico, stjórnarmaður ÍR, er staddur hjá Matthíasi Orra út í Bandaríkjunum þar sem þeir gengu frá samningnum í dag. Þetta eru miklar gleðifréttir fyrir ÍR-inga en þetta er ekki fyrsti öflugi leikmaður sem kemur til liðsins. Stefán Karel Torfason, miðherji Snæfells, samdi við liðið á dögunum. Matthías Orri Sigurðarson er 21 árs leikstjórnandi sem átti tvö mjög góð tímabil með ÍR-liðinu áður en hann fór út til Bandaríkjanna í skóla. Matthías Orri var með 19,2 stig, 5,6 fráköst og 5,9 stoðsendingar að meðaltali í Domino´s deild karla veturinn 2014-15 en tímabilið á undan var strákurinn með 16,8 stig, 6,1 fráköst og 6,7 stoðsendingar að meðaltali. Matthías Orri er yngri bróðir landsliðsmannsins Jakobs Arnar Sigurðarsonar og spilaði upp alla yngri flokka með KR. Hann varð Íslands- og bikarmeistari með KR tímabilið 2010-11 en var þá í mjög litlu hlutverki. Matthías Orri ákvað að fara frekar yfir í ÍR þegar KR-ingar fengu Pavel Ermolinskik aftur til baka úr atvinnumennsku og hann blómstraði í leikstjórnendastöðunni hjá ÍR fyrrnnefnd tvö tímabil. Matthías Orri ætti að geta að hjálpað ÍR-ingum að vinna sér aftur sæti í úrslitakeppninni þar sem þeir hafa ekki verið undanfarin fimm ár.
Dominos-deild karla Mest lesið Þurftu að biðja Infantino afsökunar Fótbolti Þurfti að spretta í markið eftir 102 klukkutíma á hlaupum Sport Barcelona kærir PSG vegna móðgandi skilaboða Fótbolti Setti tvö Íslandsmet í snörun á Evrópumótinu Sport „Það er augljóst að Kane á að vinna Ballon d'Or“ Fótbolti „Þetta voru meira en vonbrigði“ Fótbolti „Kevin sér opnar hraðbrautir þar sem aðrir sjá umferðarteppu“ Fótbolti Dazia skoraði 46 stig fyrir KR Körfubolti Bestu byrjanir táninga í körfunni: Gerði betur en Tryggvi og Jón Arnór Körfubolti Kane stríddi löndum sínum en Arsenal fer heim með stig Fótbolti Fleiri fréttir Bestu byrjanir táninga í körfunni: Gerði betur en Tryggvi og Jón Arnór Dazia skoraði 46 stig fyrir KR Uppgjörið: Grindavík-Keflavík 89-75 | Grindavíkurkonur á skriði og eru taplausar á toppnum Reiður LeBron lét stuðningsmenn Knicks heyra það Nablinn grillaði verstu liðin: „Er bærinn Hveragerði líka í fallbaráttu?“ Lagði meistarana í fyrsta leik með nýju liði Margar fengu að skína í stórsigri Íslandsmeistaranna Uppgjörið: Valur - Haukar 85-90 | Hafnfirðingar aftur á sigurbraut Þriðji Stjörnusigurinn í röð þrátt fyrir stórleik þeirrar argentínsku Elvar Már gaf ellefu stoðsendingar í Evrópubikarnum Missir af öðru tímabilinu í röð vegna meiðsla Luka Gasic frá í nokkrar vikur „Þetta er karfa tímabilsins“ Slógu íslensku dómararnir heimsmet? Kane mætti en Blikar slógu út meistara Grindavíkur Fundu ekki Ísland og töpuðu síðan Hæsta stigaskorun í ellefu mánuði Hent út af fjölskyldunni og var á götunni í tvo daga Haltraði af æfingu nokkrum dögum fyrir fyrsta leik tímabilsins Sextán ára stjarna Vals heillar Gamlar KR kempur létu ÍR hafa fyrir hlutunum Tryggvi stóð í ströngu gegn stórliði Real Madrid Kane brást illa við gríni Valsarans Sindri áfram í sextán liða úrslit Elvar öflugur í spennutrylli „Mikil framför en því miður ekki nóg“ „Margt sem við þurfum að laga“ Uppgjörið: Valur - Grindavík 81-74 | Valur setti díselvélina í gang undir lokin Uppgjörið: Stjarnan - Höttur 98-103| Höttur knúði fram sigur á lokamínútunni Kane lendir um helgina Sjá meira