Leikjavísir

GameTíví: Íslenska landsliðið í PES

Samúel Karl Ólason skrifar
Þeir GameTívíbræður Óli og Sverrir kíktu aftur á Pro Evolution Soccer 2016 á dögunum. Búið er að gefa út uppfærslu vegna Evrópumótsins í sumar og höfðu framleiðendur leiksins lofað því að búið væri að laga nöfn og útlit leikmanna. Það þurfti að sannreyna, þar sem íslenska landsliðið var nánast óþekkjanlegt þegar leikurinn kom upprunalega út.

Sjá einnig: „Copperwheat loksins kominn í íslenska landsliðið“

Strákarnir taka leik sem Ísland á móti Portúgal og það fyrsta sem þeir taka eftir er að íslenska landsliðið fær ekki þjóðsönginn, en það gera Portúgalir.

Nöfn leikmanna eru orðinn raunveruleg og margir hverjir eru ansi líkir fyrirmyndinni.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×