Innlent

Herjólfur siglir fyrstu ferðina til Landeyjahafnar í dag

Birgir Olgeirsson skrifar
Gunnlaugur Grettisson, rekstrarstjóri Herjólfs, segir þetta mikið gleðiefni að Herjólfur sigli loks til Landeyjahafnar eftir erfiðan vetur.
Gunnlaugur Grettisson, rekstrarstjóri Herjólfs, segir þetta mikið gleðiefni að Herjólfur sigli loks til Landeyjahafnar eftir erfiðan vetur. Vísir/Óskar P. Friðriksson
Herjólfur siglir fyrstu ferð sumarsins til Landeyjahafnar í dag. Gunnlaugur Grettisson, rekstrarstjóri Herjólfs, segir þetta mikið gleðiefni að Herjólfur sigli loks til Landeyjahafnar eftir erfiðan vetur. Bæjarlífið í Vestmannaeyjum muni klárlega taka kipp og farþegar streyma til Vestmannaeyja um höfnina næstu mánuði, er haft eftir Gunnlaugi í fréttatilkynningu vegna þessa tilefnis.

Ferðir helgarinnar eru sem hér segir:

VEY 15:30, LAN 16:30

VEY 21:00, LAN 22:00

Farþegar sem áttu bókað frá Eyjum 15:30 til Þorlákshafnar færast í 15:30 ferð til Landeyjahafnar. Farþegar sem áttu bókað frá Þorlakshöfn 19:15 færast í 16:30 ferð frá Landeyjahöfn en geta einnig haft samband við afgreiðslu og farið kl. 22:00 einnig. Biðlistar eru óbreyttir. Farþegar á biðlista hafi samband við afgreiðslu Herjólfs ef þeir óska eftir að fara í seinni ferðinni til eða frá Landeyjahöfn.

Eimskip, SS og Ölgerðin munu bjóða farþegum Herjólfs upp á grillaður pylsur og drykki við afgreiðslu Herjólfs í Vestmannaeyjum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×