Segir nemendum Verzló ekki vorkunn að þurfa að leggja lengra frá Birgir Olgeirsson skrifar 8. mars 2016 16:57 Verzlingar óánægðir eftir að hafa verið vísað frá bílastæðum austan megin við Kringluna. Framkvæmdastjóri Kringlunnar hefur bent nemendum á að þeir megi nýta stæðin vestan megin við Kringluna og þurfi aðeins að ganga hundrað skrefum meira eða minna þurrum fótum í gegnum Kringluna til að komast í skólann. Vísir
Nemendur Verzlunarskóla Íslands ráku upp stór augu í morgun þegar þeir komu að bílastæðum austan megin við verslunarmiðstöðina Kringluna. Um er að ræða bílastæðin við Stjörnutorg en búið var að setja keðju fyrir innganginn og við þeim blasti miði þar sem þeim var bent á að leggja í bílastæði sem eru vestan megin við Kringluna. Er það svo að bílastæðin við Verzlunarskólann anna ekki bílaflota nemenda og því hafa þeir lagt í þessi stæði austan megin við Kringluna sem eru nær skólanum en þau sem eru vestan megin. Urðu einhverjir nemendur afar óánægðir vegna þessarar ákvörðunar og gengu sumir svo langt að hvetja til sniðgöngu á þjónustu við Stjörnutorg. Er ætlunin hjá einhverjum að mæta þangað með nesti í stað þess að eiga í viðskiptum við veitingastaðina þar.Rekstaraðilar sem eru staðsettir þarna séu ekki sáttir við borga háa leigu og há húsgjöld og svo séu stæðin upptekin fyrir aðra en viðskiptavini.mynd/vilhelmÓánægja meðal nemenda sem eru stór kúnnahópur Ingi Ólafsson, skólastjóri Verslunarskóla Íslands, segir í samtali við Vísi að þetta sé í fyrsta skiptið í langan tíma sem forsvarsmenn Kringlunnar loka þessum stæðum. Einhver ár eru síðan það var síðast gert en hingað til hefur að sögn Inga verið óformlegt samkomulag á milli Kringlunnar og Verzlunarskólans þess efnis að stæði Kringlunnar standa nemendum skólans til boða og á móti hafi skólinn opnað sín stæði fyrir viðskiptavinum Kringlunnar þegar mesta jólatraffíkin er. „Þetta hefur aldrei verið neitt formlegt samkomulag en menn hafa verið ásáttir um það,“ segir Ingi sem segir að auðvitað sé mun þægilegra fyrir nemendurna að leggja austan megin við Kringluna fremur en vestan megin. „Nemendurnir eru að sjálfsögðu óánægðir með þetta. Kringlumenn hljóta að gera sér grein fyrir því að þetta er mjög stór viðskiptahópur,“ segir Ingi.Góðæristengt vandamál Sigurjón Örn Þórsson, framkvæmdastjóri Kringlunnar, segir það gefa augaleið að bílastæði Kringlunnar séu ætluð fyrir viðskiptavini Kringlunnar og rekin og kostuð sem slík af húsinu. Rekstaraðilar sem eru staðsettir þarna séu ekki sáttir við borga háa leigu og há húsgjöld og svo séu stæðin upptekin fyrir aðra en viðskiptavini. Hann segir þessi mál koma upp með reglulegu millibili og séu þá góðæristengd. Með aukinni hagsæld í samfélaginu fjölgi þeim sem eru á bílum og á það einnig við nemendur Verzlunarskólans. „Við höfum alltaf horft til þess, því þessi mál koma ítrekað upp, annars vegar eru hagsmunir þeirra sem eru húsinu og borga okkur gjöldin, sem reka stæðin, þegar þau eru teppt af bílum nemenda þá nýtast þau ekki viðskiptavinum hússins. Við höfum lagt til við þau, því fjöldi stæða hér austan megin við húsið en eru takmarkaðri en vestan megin við húsið, að leggja í stæðin vestan megin við húsið og ganga í gegnum húsið að hluta, þá væri það þannig að það dreifðist og við yrðum minna vör við það,“ segir Sigurjón.Eina leiðin inn í Borgarbókasafnið Bílastæðin sem um ræðir eiga einnig að nýtast þeim sem sækja Borgarbókasafnið sem er í Kringlunni og segir Sigurjón forsvarsmenn þess ýta á að aðgengi að safninu sé gott, því eina leiðin inn á bókasafnið sé af umræddu bílastæði. „Með því að loka á stæðin þarna þá erum viða að ýta á nemendur að fara vestan megin við húsið. Öðrum kosti eins og eðlilegt er þá leggja menn næst inngangi hvar sem er. Það er svo sem ekki verið að útiloka það að nemendur Verzlunarskólans nýti stæði Kringlunnar,“ segir Sigurjón sem var í sambandi við Brynju Sigurðardóttur, formann hagsmunaráðs nemendafélags skólans, um málið.Stæðin fyrir utan Verzlunarskólann anna ekki bílaflota nemenda. VÍSIR/VilhelmStæði skólans nýtast Kringlunni nokkra daga ári Aðspurður út í óformlegt samkomulag skólans við Kringluna um að deila stæðum svarar Sigurjón því að stæði Verzlunarskólans nýtist Kringlunni þessa síðustu fimm til sex daga fyrir jóla þegar þarf að dreifa stæðunum um allt svæðið í kringum verslunarmiðstöðina. „En á móti þá erum við a tala um nýtingu á stæðum Kringlunnar allan vetrartímann á meðan skóla stendur.“ Þegar hann er spurður út í orð Inga Ólafssonar skólastjóra þess efnis að nemendur Verzlunarskólans séu stór hópur viðskiptavina Kringlunnar segir Sigurjón að Kringlan sé nú þegar að bjóða þeim stæðin sem eru vestan megin við verslunarmiðstöðina.Kúnni stoppar í Kringlunni í 50 mínútur „Það er enginn ágreiningur um það. Kúnni í Kringlunni stoppar frá svona 49 og upp í 55 mínútur í húsinu. Það er sá tími sem hver og einn bíll teppir stæði. Þegar þú ert með nemendur sem koma klukkan átta á morgnanna og fara kannski eitt tvö þrjú frá þá ertu með það stæði algjörlega undirlagt allan þann tíma,“ segir Sigurjón.Kringlan dyggur stuðningsaðili félagsstarfs nemenda Hann segir Kringluna ávallt hafa átt gott samstarf við nemendur skólans. Kringlan sé dyggur stuðningsaðili félagsstarfs nemendanna. „Við erum í góðu samstarfi við þá en hvort menn þurfi að labba einhverjum hundrað skrefum meira eða minna þurrum fótum í gegnum húsið. Það er ekkert ægilega mikið á fólk lagt. En þá hefur maður heyrt nemendur segja þá þurfum við að mæta fimm mínútum fyrr og eitthvað slíkt. Það er ekki verið að loka neinum dyrum á fólkið. Við bendum nemendum einungis á að vera vestan megin við húsið þar sem þeim er frjálst að nýta stæði.“Les Misérables hefði kannski átt að vera þýtt Verslingarnir. #TheStruggleIsReal #stjörnutorgsverkfall— Guðný Elísa (@PhoenixElisa81) March 8, 2016 Eru verslingar upp til hópa að vinna á stjörnutorgi eða er þeir að rugla saman hugtökunum verkfall og sniðganga? #stjörnutorgsverkfall— þurrger (@Porgeir) March 8, 2016 Svo ættuð þið auðvitað alltaf að vera með nesti. Og passa að vera með alla fæðuflokkana. #stjörnutorgsverkfall— Haukur Viðar (@hvalfredsson) March 8, 2016 Verzlingar munu koma með nesti daginn eftir raveball #stjörnutorgsverkfall #nice— Hugga_cool (@hugrun96) March 8, 2016
Tengdar fréttir Einkunnaverðbólga í Verzló 1,4 % á ári Grunnskólaeinkunnir nýnema hafa hækkað gríðarlega þrátt fyrir færri umsóknir og lægri einkunnir á fyrstu önn menntaskóla. 26. febrúar 2016 10:15 Formaður Femínistafélags Verzló: „Stelpan er mjög valdamikil í þessu myndbandi“ Sylvía Hall ræddi myndbandið umdeilda frá 12:00 í Brennslunni í morgun. 11. febrúar 2016 11:21 Mest lesið Segir Enok hafa setið fyrir manni sem stakk hann hálfu ári áður Innlent „Það er svo ótrúlega erfitt að vera synjað um að hitta börnin sín” Innlent Yrði stærsta lýðheilsuslys Íslandssögunnar Innlent Sagður hafa slegið eiginkonu sína ítrekað með steikarpönnu Innlent Segja Pútín vilja vopnahlé sem miðist við núverandi víglínur Erlent Líklega síðasta veðurviðvörunin í bili Veður Veita viðtal um Hamraborgarmálið í fyrsta sinn: Viðvörunarkerfi í bílnum hefði getað gert illt verra Innlent Sex handteknir í átaki gegn ólöglegri atvinnustarfsemi Innlent Vilja banna snjallsíma fyrir yngri en 16 ára Erlent Mikill harmleikur en skýrir farvegir Innlent Fleiri fréttir Bjarkey kemur starfsfólki matvælaráðuneytisins til varnar Málþing um stöðluð greiningar- og meðferðarferli Spá goslokum á Sundhnúksgígaröð í lok júlí Sagður hafa slegið eiginkonu sína ítrekað með steikarpönnu „Það er svo ótrúlega erfitt að vera synjað um að hitta börnin sín” Sex handteknir í átaki gegn ólöglegri atvinnustarfsemi Segir Enok hafa setið fyrir manni sem stakk hann hálfu ári áður Svipað og frekar róleg haustlægð Yrði stærsta lýðheilsuslys Íslandssögunnar Veita viðtal um Hamraborgarmálið í fyrsta sinn: Viðvörunarkerfi í bílnum hefði getað gert illt verra Rúta brann til kaldra kola við Sóltún Mikill harmleikur en skýrir farvegir Tamningakona sýknuð af bótakröfu vegna reiðslyss Aukinn viðbúnaður í verðmætaflutningum og óveður í beinni Stöðvaði innbrotsþjóf sem var hálfur inni í bílnum Katrín að taka afgerandi forystu Albert Guðmundsson verður ákærður fyrir kynferðisbrot Fyrirvari á eldgosi gæti orðið mjög stuttur Telur víst að sala á Landsvirkjun komi á borð næsta forseta Segja miður að móðir hafi upplifað að ekki væri hlustað á hana Íslendingurinn sem slasaðist í háloftunum var á vegum Marels Björgólfur lýkur hópmálsókn með milljarðssátt Hafa níu mánuði til að svara dómi MDE í talningamálinu Sló aðra á heimilinu ítrekað með hleðslusnúru Vonar að þetta dugi til Hagkaup selur áfengi og Þórkatla kaupir í Grindavík „ÁTVR dugar“ Hækka leigu á stúdentagörðum um tvö prósent í haust Safna til að koma konunum í varanlegt skjól í Nígeríu Fundur um athafnaborgina Reykjavík Sjá meira
Einkunnaverðbólga í Verzló 1,4 % á ári Grunnskólaeinkunnir nýnema hafa hækkað gríðarlega þrátt fyrir færri umsóknir og lægri einkunnir á fyrstu önn menntaskóla. 26. febrúar 2016 10:15
Formaður Femínistafélags Verzló: „Stelpan er mjög valdamikil í þessu myndbandi“ Sylvía Hall ræddi myndbandið umdeilda frá 12:00 í Brennslunni í morgun. 11. febrúar 2016 11:21
Veita viðtal um Hamraborgarmálið í fyrsta sinn: Viðvörunarkerfi í bílnum hefði getað gert illt verra Innlent
Veita viðtal um Hamraborgarmálið í fyrsta sinn: Viðvörunarkerfi í bílnum hefði getað gert illt verra
Veita viðtal um Hamraborgarmálið í fyrsta sinn: Viðvörunarkerfi í bílnum hefði getað gert illt verra Innlent