Lífið

#snorruela: Fylgst með stefnumóti Manúelu og Snorra í beinni

Atli Ísleifsson skrifar
Stefnumótsins hefur verið beðið með gríðarlegri eftirvæntingu.
Stefnumótsins hefur verið beðið með gríðarlegri eftirvæntingu. Mynd/Twitter/Snapchat
Einhverjar skærustu stjörnur samfélagsmiðlanna á Íslandi, Manúela Ósk Harðardóttir og Snorri Björns, fóru á stefnumót sitt í kvöld og þarf ekki að koma á óvart að greint sé frá gangi mála bæði á Twitter og Snapchat.

Greint var frá því í gær að þau Snorri og Manúela ætluðu á stefnumót, en samskipti þeirra hófust á Twitter þegar Manúela tísti eftirfarandi: „Hver er Snorri Björns, af hverju er ég með hann á Snap og ætli hann vilji byrja með mér? #crushin.“ Snorri var snöggur að svara og bauð Manúelu á stefnumót.

Snorri birtir skjáskot á Twitter af Facebook-samskipum sínum við Manúelu þar sem hún spyr í aðdraganda stefnumótsins hvort hún eigi að vera í kjól, auk þess að hún biður hann um að vera ekki í jakkafötum eða einhverju álíka.

Snorri hikar ekki við hlutina og birtir myndband af sér þar sem hann gerir sig reiðubúinn að fara út – í kjölfötum.

Netverjar hafa svo verið gríðarlega duglegir að tjá sig undir kassamerkinu #snorruela um framgang mála enda hefur stefnumótsins verið beðið með gríðarlegri eftirvæntingu.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×