Pellegrini: Ekki farið á bakvið mig Tómas Þór Þórðarson skrifar 1. febrúar 2016 13:45 Manuel Pellegrini á bakvið Pep Guardiola. vísir/getty
Manuel Pellegrini er á sinni síðustu leiktíð með Manchester City, en Sílemaðurinn tilkynnti í dag að hann verður ekki áfram með City-liðið. Arftaki hans verður Spánverjinn Pep Guardiola, sem af flestum er talinn besti fótboltaþjálfari heims. Hann yfirgefur Bayern München í sumar, væntanlega með þriðja Þýskalandsmeistaratitlinum í röð, og tekur við Manchester City. „Manuel, sem styður þessa ákvörðun heilshugar, er algjörlega einbeittur á að ná sínum markmiðum með liðið á þessari leiktíð. Hann nýtur mikillar virðingar hjá félaginu og allra sem þarf starfa,“ segir í fréttatilkynningu sem Manchester City sendi frá sér í dag. City talaði fyrst við Guardiola árið 2012 þegar hann ákvað svo að taka við Bayern München, og voru viðræðurnar núna í raun áframhald af því, að því fram kemur í fréttatilkynningunni. „Við vildum sýna Manuel Pellegrini og leikmönnunum þá virðingu að greina frá þessu núna til að útrýma öllum pælingum um framtíðina hjá öðrum utan félagsins,“ segir í henni enn fremur. Pellegrini var brattur þegar hann ræddi við blaðamenn í dag fyrir leik liðsins gegn Sunderland annað kvöld. Hann er ekki ósáttur, að eigin sögn. „Ég klára minn samning hérna 30. júní. Það hefur margt verið skrifað og skrafað en ekkert var gert á bakvið mig. Ég tel það ekki gott að menn séu með einhverjar bollaleggingar og þess vegna ákvað ég að segja ykkur blaðamönnum frá þessu og leikmönnunum,“ sagði Manuel Pellegrini.
Enski boltinn Mest lesið „Núna ætla ég að klára þetta þar sem þetta er síðasta tímabilið mitt hérna“ Sport Tiger trúir enn á sjálfan sig: „Líður enn eins og ég geti unnið golfmót“ Golf „Þetta var eitt það erfiðasta sem ég hef farið í gegnum“ Sport Gerir sér grein fyrir erfiðu tímabili: „Þið eruð bestu stuðningsmenn í heimi“ Enski boltinn Birna með slitið krossband og missir af úrslitaeinvíginu Körfubolti Albert gáttaður á Lárusi Orra: „Hvað meinarðu? Hvað er í gangi hérna?“ Íslenski boltinn Uppgjörið og viðtöl: Valur - Afturelding 27-29 | Mosfellingar í úrslit Handbolti Evrópudraumurinn lifir góðu lífi eftir fjórða sigurinn í röð Enski boltinn United lyfti sér upp að hlið Newcastle Enski boltinn „Þetta var ótrúlega erfitt“ Fótbolti Fleiri fréttir United lyfti sér upp að hlið Newcastle Evrópudraumurinn lifir góðu lífi eftir fjórða sigurinn í röð Everton boðið neyðarlán til að klára nýja heimavöllinn Félagaskiptaglugganum lokað fyrr en vanalega í sumar Stjóri Spurs ósáttur við viðhorfið: „Þetta er utan félagsins, innan þess, alls staðar“ Segir að Ortega hafi unnið titilinn fyrir City Ten Hag vísar gagnrýni Rooneys til föðurhúsanna United íhugar að ráða stjóra Ipswich sem eftirmann Ten Hags Telja að Bruno verði áfram á Old Trafford Sagði sína menn hafa þurft að þjást og hrósaði varamarkverðinum Varamarkmaðurinn og Håland hetjurnar: Man City á toppinn fyrir lokaumferðina Emirates verður aðalheimavöllur Arsenal á næstu leiktíð Guardiola: Arsenal verður meistari ef við vinnum ekki Tottenham Var með 0,99 í xG en skoraði samt ekki Varane kveður United eftir tímabilið Fernandes íhugar að stökkva frá borði Hrósaði karakter leikmanna eftir að liðið henti frá sér unnum leik Liverpool henti frá sér sigrinum í síðasta útileik Klopp Kröfðu Bayern um 100 milljónir fyrir þjálfarann Sú markahæsta í sögu ensku deildarinnar yfirgefur Arsenal og fer væntanlega til City Foss á Old Trafford leikvanginum í gær Saka Casemiro um leti: „Hreyfðu fæturna á þér“ Líkir Havertz við Liverpool-hetju Segir að staðan hjá United sé miklu verri en hún var hjá Moyes Havertz: „Verð mesti stuðningsmaður Tottenham í sögunni“ Rooney sakar meidda leikmenn United um að vilja ekki spila „Höfum ekki haft neitt svigrúm til að gera mistök“ Fyrsti stóri titill United-kvenna Enn ekkert skorað í umspilinu Trossard skaut Arsenal á toppinn Sjá meira