Innlent

Hviður gætu farið upp í 50 metra á sekúndu

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Vegagerðin býst við að loka þurfi Hellisheiði og Þrengslum um og upp úr hádegi vegna veðurs.
Vegagerðin býst við að loka þurfi Hellisheiði og Þrengslum um og upp úr hádegi vegna veðurs. vísir/vilhelm
Skil sem nálgast landið úr suðri valda því að stormur mun ganga yfir í dag og fram á morgundaginn. Vegir munu loka víða, og hefur Suðurlandsvegi frá Skaftafelli að Jökulsárlóni nú þegar verið lokað. Þá hefur kennsla verið felld niður í Fjölbrautaskóla Suðurlands á Selfossi eftir hádegi.

Helga Ívarsdóttir, vakthafandi veðurfræðingur á Veðurstofu Íslands, segir að það bæti í vindinn hægt og rólega núna fyrir hádegi en svo muni hvessa ört eftir hádegið.

„Veðrið verður í hámarki síðdegis sunnan til á landinu og þessu fylgir snjókoma og slydda, og rigning syðst. Svo ganga þessi skil norður eftir þannig að það verður orðið vont veður þar í öðrum landshlutum í kvöld. Veðrið hangir þarna norðan og norðvestan til fram eftir morgundeginum og þá fer ekki að lægja á Vestfjörðum fyrr en seint á morgun,“ segir Helga í samtali við Vísi.

Mikil snjóflóðahætta á norðanverðum Vestfjörðum

Samkvæmt upplýsingum frá snjóflóðadeild Veðurstofunnar er talið að veruleg snjóflóðahætta skapist á norðanverðum Vestfjörðum þegar óveðrið skellur á núna síðdegis og þá er spáð snjókomu þar í nótt og fram á morgundaginn.

Nú þegar er talin mikil hætta en með því er verið að vara fólk við flóðahættu utan alfaraleiðan. Óvissuástandi er hins vegar lýst yfir þegar byggð getur verið í hættu en því hefur ekki verið lýst enn og því ekki fyrirhugað að rýma nein hús.

Snjóflóðavakt Veðurstofunnar fylgist mjög grannt með framvindu mála á Vestfjörðum og verður almannavarnanefnd þegar kölluð saman ef ástæða þykir til.

Snarpar hviður í Öræfum, Mýrdal, undir Eyjafjöllum, á Kjalarnesi og undir Hafnarfjalli

Í ábendingum frá veðurfræðingi á vef Vegagerðarinnar kemur fram að búast megi við hviðum að allt að 40 til 50 metrum á sekúndu um klukkan 14 í dag í Öræfum, Mýrdal, undir Eyjafjöllum, á Kjalarnesi og undir Hafnarfjalli.

Vegna slæmrar veðurspár verður Hringvegi 1 því lokað frá klukkan 12 í dag frá Hvolsvelli að Jökulsá á Breiðamerkursandi. Þá áætlar Vegagerðin jafnframt að vegna óveðursins megi búast við því að grípa þurfi til lokana á vegum á Suðvesturlandi.

Þannig eru líkur á því að um um og upp úr hádegi verði vegum lokað yfir Hellisheiði, um Þrengsli og Mosfellsheiði. Ólíklegt er að unnt verði að beina umferð um Suðurstrandarveg á meðan lokanir vara. Þá er einnig líklegt að loka þurfi Vesturlandsvegi um Kjalarnes.


Tengdar fréttir

Mikil snjóflóðahætta á Vestfjörðum

Miikil snjóflóðahætta er nú á norðanverðum Vestfjörðum. Óstöðugleiki hefur verið í snjóþekjunni og nokkru snjóflóð hafa fallilð fyrr í vikunni, en öll fjarri byggð. Spáð er töluverðri snjókomu í dag og á morgun og má búast við að snjóflóðahætta aukist hratt, segja sérfræðingar Veðurstofunnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×