Innlent

Píratar virðast óstöðvandi en Sjálfstæðisflokkurinn undir 20 prósentum

Aðalsteinn Kjartansson skrifar
Stuðningur við Pírata mælist vel umfram þann stuðning sem ríkisstjórnin mælist með. Helgi Hrafn Gunnarsson er kapteinn Pírata.
Stuðningur við Pírata mælist vel umfram þann stuðning sem ríkisstjórnin mælist með. Helgi Hrafn Gunnarsson er kapteinn Pírata. Vísir/Vilhelm
Fylgi Sjálfstæðisflokksins er komið undir 20 prósent í nýrri könnun MMR. Píratar mælast aftur á móti með 37,8 prósenta fylgi, sem er meira en flokkurinn hefur mælst með í síðustu könnunum fyrirtækisins. 

Samfylking, Vinstri grænir og Framsóknarflokkur mælast með á bilinu 10 til 12,5 prósent fylgi og Björt Framtíð mælist með 4,4 prósenta fylgi. Vinstri græn mælast af þessum flokkum stærst með 12,5 prósent, Samfylkingin 10,4 og Framsóknarflokkurinn slétt 10.

Af þeim flokkum sem buðu fram í síðustu kosningunum en náðu ekki kjöri mælist framboð Sturlu Jónssonar vörubílstjóra með mest fylgi, eða eitt prósent. Flokkarnir mælast þó allir með svo lítinn stuðning að vart er hægt að greina á milli þeirra með teknu tilliti til vikmarka.

Stuðningur við ríkisstjórnina mælist 30,1 prósent. Það er aðeins minna en stjórnin hefur verið að mælast í síðustu könnunum MMR en stuðningurinn hefur verið frá 29,4 prósentum til 35,5 prósenta síðan í lok mars á síðasta ári.

Stuðningur við Pírata er þannig vel umfram þann stuðning sem ríkisstjórnin mælist með, sem og samanlagðan stuðning ríkisstjórnarflokkanna, sem mælast samtals með 29,5 prósent.

Könnunin var gerð dagana 12. til 20. janúar á meðal einstaklinga 18 ára og eldri, sem valdir voru handahófskennt úr hópi álitsgjafa MMR. Þeir eru valdir úr þjóðskrá þannig að þeir endurspegli lýðfræðilega samsetningu þjóðarinnar. 922 svör bárust í könnuninni, samkvæmt upplýsingum á vef MMR.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×