Lífið

Logi Geirsson stelur senunni með gylltu bindi: "Getur sagt hvað sem er með þetta bindi“

Birgir Olgeirsson skrifar
Logi virðist kunna listina að fanga athygli almennings.
Logi virðist kunna listina að fanga athygli almennings. Vísir/RÚV
Nú styttist í leik Íslands gegn Hvíta-Rússlandi á Evrópumóti karla í handbolta og hefur upphitun staðið yfir í EM-stofu RÚV fyrir leikinn. Þar er Logi Geirsson, fyrrverandi landsliðsmaður í handknattleik, einn af álitsgjöfum en álit Loga hefur fallið algjörlega í skuggann af bindinu sem hann skartar í sjónvarpssettinu.

Notendur á Twitter hafa ekki farið varhluta af þessu hálstaui hans Loga og hafa nokkrir hverjir haft orð á því að þeir hreinlega blindist af því.

Og ætli megi ekki vera sammála þessum?

Þessi bendir réttilega á að það hefur líkast til aldrei reynt meira á ljósamanninn. 

Logi slær sjálfur á létta strengi.

Annars má fylgjast með EM-umræðunni á Twitter hér fyrir neðan:






Fleiri fréttir

Sjá meira


×