Lífið

Hvar stendur þú í samanburði við David Bowie?

Birgir Olgeirsson skrifar
David Bowie á Ziggy Stardust árunum sínum.
David Bowie á Ziggy Stardust árunum sínum. Vísir/Getty
Hefur þú einhvern tímann velt því fyrir hverju breski tónlistarmaðurinn David Bowie hafði áorkað á þínum aldri? Svarið er að finna á vefsíðunni supbowie.com er að finna yfirlit yfir ævistarf hans ár frá ári.

Einnig er hægt að slá inn aldur í leitarglugga á síðunni og fást þannig á skjótan hátt upplýsingar um hvað David Bowie, eða David Robert Jones, var að gera á þeim tíma.

Hér fyrir neðan má sjá nokkur dæmi: 

Árið 1969 var Bowie 22 ára og gaf út lagið Space Oddity í júlí það ár sem varð fyrsti smellurinn hans í Bretlandi. Breska ríkisútvarpið BBC notaði lagið í umfjöllun sinni um tungleiðangur Apollo 11 sama ár. 

25 ára brá hann sér í hlutverk persónunnar Ziggy Stardust sem hann skapaði og gefur út plötuna The Rise and Fall of Ziggy Stardust and the Spiders from Mars.

Þrítugur hafði hann skapað sitt eigið tungumál sem hann nýtti í textagerð fyrir lagið Subterraneans sem kom út á plötunni Low árið 1977. 

34 ára semur hann lagið Under Pressure í samstarfi við bresku sveitina Queen.

36 ára gefur hann út mest seldu plötuna sína, Let´s Dance

Og sextugur ljáði hann persónunni Lord Royal Highness rödd sína í þættinum Atlantis SquarePantis í þáttaröðinni um SpongeBob SquarePants, betur þekktur sem Svampur Sveinsson. 

Nú er ekkert annað eftir að gera en að bera sig saman við Bowie með því að smella hér. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×