Innlent

Hagamelsmorðið hreyfði við Barnavernd

Snærós Sindradóttir skrifar
Bragi Guðbrandsson, forstjóri Barnaverndarstofu.
Bragi Guðbrandsson, forstjóri Barnaverndarstofu. mynd/aðsend
„Málið var ekki opið barnaverndarmál þegar þessir hörmulegu atburðir gerðust,“ segir Bragi Guðbrandsson, forstjóri Barnaverndarstofu, um Hagamelsmálið sem Fréttablaðið fjallaði um á laugardag. Árið 2004 myrti móðir ellefu ára dóttur sína og slasaði son sinn lífshættulega.

„Auðvitað leiddi það til þess að það var gerð úttekt á málinu og því hvort og hvaða ályktanir væri hægt að draga af því. Það hefur verið vinnuregla síðan að gera úttekt þegar voveifleg dauðsföll barna ber að garði,“ segir Bragi.

Þegar málið kom upp var farið vandlega í saumana á því hvernig samskipti skólayfirvalda, lögreglu, barnaverndar og heilbrigðiskerfisins fóru fram.

„Í kjölfar þessa máls lagði ég til að það yrði komið á viðbragðsteymi vegna voveiflegra dauðsfalla barna að erlendri fyrirmynd. Það var mat manna að lagabreytingu þyrfti til að skjóta stoðum undir slíka starfsemi. Barnaverndarstofa lagði þetta til við síðustu endurskoðun barnaverndarlaga en því miður náði það ekki fram að ganga.“

Bragi telur að barnaverndarkerfið væri í fastari skorðum með slíku teymi. „Eitt af því sem við höfum alls ekki staðið okkur nægilega vel í er samhæfing aðgerða í kjölfar svona atburða. Það þarf að skerpa þessar línur og gera með öflugri hætti en við erum að gera í dag.“ 


Tengdar fréttir

Mamma reyndi að drepa mig

Einar Zeppelin Hildarson komst lífshættulega slasaður undan móður sinni eftir stunguárás. Systir hans lést í árásinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×