Sport

Aníta getur unnið í þriðja sinn í hundraðasta Víðavangshlaupi ÍR-inga

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Aníta Hinriksdóttir.
Aníta Hinriksdóttir. Fréttablaðið/Getty
ÍR-ingar halda upp á mikil tímamót í miðbænum á morgun, sumardaginn fyrsta, þegar Víðavangshlaup ÍR fer fram í hundraðasta skiptið. Engin önnur íþróttakeppni hefur farið fram samfellt í svo langan tíma hér á landi en fyrsta hlaupið fór fram á sumardaginn fyrsta árið 1916 og síðan hefur ekki fallið úr hlaup.

Þetta tímamótahlaup verður líka algjört methlaup því aldrei hafa jafn margir verið skráðir til leiks í Víðavangshlaup ÍR og enn er tími til þess að skrá sig. Forskráning er á hlaup.is til miðnættis í kvöld en síðan verður skráning í Hörpunni frá kl. 9.30 til 11.00 á morgun, sjálfan hlaupadaginn. Hlaupaleiðin er ný en hún er 5 kílómetra löng og liggur um hjarta borgarinnar.

Hlaupið er ræst í Tryggvagötunni og meðal annars er hlaupið upp Hverfisgötuna, niður Laugaveginn og umhverfis Tjörnina áleiðis í mark við Arnarhól.

Alls hefur 9.281 hlaupari tekið þátt í hlaupinu frá upphafi. Það eru allar líkur á því að tíuþúsundasti hlauparinn komi í mark á morgun. Hlaupari sem kemur í mark í 719. sæti mun fá sérstök verðlaun sem hlaupari númer 10.000 frá upphafi.

Hin frábæra hlaupakona Aníta Hinriksdóttir úr ÍR verður meðal keppenda í ár. Aníta sigraði í kvennaflokki árin 2012 og 2013 og á nú möguleik á að sigra í þriðja skipti þrátt fyrir að vera ung að árum. Líklegustu keppinautar Anítu í hlaupinu eru stöllur hennar úr ÍR, María Birkisdóttir og Andrea Kolbeinsdóttir.

Kári Steinn Karlsson úr ÍR, besti langhlaupari landsins, keppir ekki að þessu sinni í víðavangshlaupinu því hann mun keppa í maraþonhlaupi tveimur dögum síðar. Kári Steinn fær hins vegar það heiðurshlutverk í 100. Víðavangshlaupi ÍR að ræsa hlaupið kl. 12.00 á fimmtudag í Tryggvagötu.

Sigurstranglegustu hlaupararnir í karlaflokki eru Arnar Pétursson, ÍR, Sæmundur Ólafsson, ÍR, Þorbergur Ingi Jónsson, UFA, og Ingvar Hjartarson, Fjölni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×