Lífið

Ed Sheeran gaf Grammy-fötin til góðgerðarmála

Ed Sheeran er bæði hæfileikaríkur og góðhjartaður.
Ed Sheeran er bæði hæfileikaríkur og góðhjartaður. Vísir
Söngvarinn sjarmerandi, Ed Sheeran, sendi móður sína, Imogen, með öll fötin, sem hann kom fram í á Grammy-hátíðinni, til Englands.

Fötin gaf hann til góðgerðarverslunarinnar St. Elizabet Hospice í Framlingham.

Því eiga aðdáendur Sheerans kost á því að eignast fatnað sem hann kom fram í á þessari stóru hátíð.

Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Sheeran gefur föt til góðgerðarmála, en í fyrra gaf hann átta poka af fatnaði til góðgerðarmála.

Fötin voru gríðarlega vinsæl og seldust fyrir rúmar 800.000 íslenskar krónur.

Sheeran kom fram nokkrum sinnum á hátíðinni, meðal annars með John Mayer, Herbie Hancock og ELO. Hann og Beyoncé fluttu einnig syrpu til heiðurs Stevie Wonder, eins og sjá má í myndbandinu hér fyrir neðan.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×