Bakþankar

Hin hlandgullnu ár

Erla Björg Gunnarsdóttir skrifar
Við berum æ fleiri til þess gæfu að fá að lifa lengur. Að verða gömul og grá á ævikvöldinu ljúfa. Eða, hversu mikil gæfa er það? Frásagnir aðstandenda aldraðra í helgarblaði Fréttablaðsins af lélegum aðbúnaði og umönnun á hjúkrunarheimilum á Íslandi eru sláandi. Ég er búin að fara allan tilfinningaskalann.

Hneykslun. Dæmi eru um að aldraðir séu hlandblautir fram eftir degi, rúllað fyrir framan stillimyndina á sjónvarpinu og dópaðir upp svo þeir séu til friðs. Þeir upplifa virðingarleysi og niðurlægingu.

Reiði. Aldraðir eru afgangsstærð með veika rödd og lítinn þrýsting. En öldrun kemur okkur öllum við. Þetta bíður okkar flestra. Heilabilun og þvagleki spyrja ekki um stétt og stöðu. Sama hversu meðvituð og kröfuhörð við erum í dag og hversu oft við höfum mótmælt á Austurvelli á yngri árum þá lækkar röddin þegar maður verður umkomulaus og þarf að reiða sig á aðra. Þá er of seint að berja í borðið. Það eru til Umboðsmenn barna, skuldara og borgarbúa, auk þess sem þörfin fyrir Umboðsmann dýra hefur verið rædd. Hvar í ósköpunum er Umboðsmaður aldraðra?

Kvíði. Þegar ég verð komin í hóp eldri borgara verð ég ein af hundrað þúsund. Ef tekið er mið af stöðunni í dag munu 4.500 þurfa hjúkrunarpláss og 750 verða á biðlista. Sífellt erfiðara er að manna alltof fá hjúkrunarheimili. Hver mun hugsa um mig? Þarf ég að þjálfa börnin mín í bleyjuskiptingum eða leggja fyrir svo ég hafi ráð á einkahjúkku?

Skömm. Ég og við öll berum líka ábyrgð. Stjórnvöld endurspegla hugarfar samfélagsins og hvað okkur þykir mikilvægt. Hversu mikilvægur finnst okkur þessi málaflokkur? Kjósum við eftir stefnu flokkanna í málefnum aldraðra? (Eru stjórnmálaflokkar yfirhöfuð með stefnu í málefnum aldraðra?) Aldraðir þurfa vissulega öryggisnet samfélagsins, kerfi sem grípur þá og það er verkefni stjórnvalda. Okkar verkefni er að hætta að vera sjálfhverf og byrja að hugsa út fyrir eigið unga rassgat. Það eldist nefnilega ansi hratt!

Hvenær heimsóttir þú til dæmis ömmu þína síðast?


Tengdar fréttir

Umönnun aldraðra: „Komið betur fram við hunda en okkur.“

Aðstandendur segja að umönnun eldra fólks á hjúkrunarheimilum sé fyrir neðan allar hellur. Mannekla og fjárskortur kemur niður á samskiptum við vistmenn. Margir upplifa sig afskipta. Rætt er við fagaðila um úrlausn mála.

Standa ekki við uppbygginguna

Líkt er á komið með núverandi ríkisstjórn og þeirri fyrri þegar kemur að umgengni um Framkvæmdasjóð aldraðra. Á síðustu fimm árum hefur stórkostlega miklum peningum verið ráðstafað til annarra verkefna en lög gera ráð fyrir.

Aldraðir hafa verið hlunnfarnir

Eldri borgarar hafa orðið fyrir barðinu á kjaragliðnun. Með kjaragliðnun er átt við það, þegar lífeyrir aldraðra og öryrkja hækkar minna en kaup láglaunafólks. Það verður þá gliðnun milli kjara lífeyrisþega og kjara láglaunafólks.






×