Bakþankar

Bannað börnum

Atli Fannar Bjarkason skrifar
Stundum velti ég fyrir mér hvers konar samfélagi við búum í. Hvort hér gildi einhver lög og hvort þeim sé yfirhöfuð framfylgt. Alls konar glæpir fá að viðgangast beint fyrir framan nefin á okkur og stundum fyllist ég vonleysi yfir ráðleysinu sem virðist einkenna viðbrögð stjórnvalda. Á meðan hver stofnunin á fætur annarri bregst trausti almennings er gott að vita af því að fjölmiðlanefnd stendur í lappirnar gagnvart ofríkinu.

Á vef nefndarinnar kemur fram að á fundi sínum í vikunni hafi verið tekin ákvörðun í erfiðu máli. Ríkissjónvarpið hafði brugðist trausti almennings með því að sýna kvikmyndina Goldeneye, um ævintýri breska njósnarans James Bond, klukkan 20.55 – rúmlega klukkustund áður en heimilt er að sýna efni sem bannað er börnum í línulegri dagskrá í sjónvarpi. Kvikmyndin var auðkennd með gulu merki sem þýðir að myndin var ekki talin við hæfi barna yngri en 12 ára. Lög voru brotin.

Skiljanlega brást almenningur ókvæða við sýningu myndarinnar. Samfélagsmiðlar loguðu og við munum öll eftir fjölmennum mótmælum fyrir utan Ríkisútvarpið. Þar veifaði fólk gulum fánum og endurtók setninguna: „Að horfa á myndband er góð skemmtun. Þessi kvikmynd var bönnuð börnum yngri en 12 ára!“

Þrátt fyrir einbeittan brotavilja hefur enginn verið dreginn til ábyrgðar, hvorki útvarpsstjóri né menntamálaráðherra. Dagskrárstjóri situr líka enn og til stendur að framleiða enn eina myndina um blóðþyrstan njósnara hennar hátignar. Á tímum sem þessum er gott að vita af Fjölmiðlanefnd sem rækir mikilvægt öryggishlutverk sitt og sér til þess að börn okkar eru óhult.

Ljóst er að æska landsins varð fyrir óafturkræfum skaða vegna ósvífni Ríkisútvarpsins, sem harmaði þó mistökin sem leiddu til þess að kvikmyndin var sýnd umrætt kvöld, klukkustund áður en lög gera ráð fyrir. Og þótt Fjölmiðlanefnd hafi fallið frá sektarákvörðun í málinu má vera ljóst að RÚV hefur ekki efni á að gera sömu mistök aftur. Við verðum að hugsa um börnin.






×