Jól

Krakkarnir gapandi yfir Askasleiki

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Askasleikir vakti mikla lukku hjá ungu kynslóðinni.
Askasleikir vakti mikla lukku hjá ungu kynslóðinni. Vísir/GVA
Jólasveinarnir eru daglegir gestir á Þjóðminjasafninu dagana í aðdraganda jóla. Sækja þeir safnið heim hver á fætur öðrum og skemmta aðallega ungum og einstaka öldnum sem eiga leið í safnið.

Algengt er að leikskólar og grunnskólar geri sér ferð á safnið þar sem jólasveinarnir segja sögur og taka lagið.

Gunnar V. Andrésson, ljósmyndari Fréttablaðsins og Vísis, var á safninu í gærmorgun þegar þessir hressu krakkar skemmtu sér með Askasleiki.

„Nú skal segja“ var sungið hástöfum.Vísir/GVA
Askasleikir sýndi krökkunum að sjálfsögðu aska.Vísir/GVA
Það er jólalegt á Þjóðminjasafninu í desember.Vísir/GVA
Unga kynslóðin virtist öllu vön.vísir/GVA
Gaman saman.vísir/GVA





×